
Nýjasta útgáfa Hóla
Segir mamma þín það?
Hvað gerist á fengitimanum?
Af hverju gat hafnfirska stúlkan ekki bitið á jaxlinn?
Hvað er píslarvottur?
Af hverjum var góð skítalykt?
Hver átti hrafnana Flókni og Þókni?
Fyrir hvað stendur skammstöfunin DHL?
Þetta er bara brotabrot af því sem leitað er svara við í þessari bráðskemmtilegu bók sem svo sannarlega kemur öllum í gott skap!
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2025
Efnisflokkun: Bækur, Gamansögur, Gullkorn
Lamine Yamal
Spánverjinn Lamine Yamal er ekki aðeins efnilegasti knattspyrnumaður heims, um þessar mundir, heldur líka einn af þeim bestu. Hann er sannkallað undrabarn með knöttinn og leikskilningur hans er einstakur.
Í þessari bók er saga Yamals rakin, greint frá öllum metunum sem hann hedur slegið og verðlaununum sem hann hefur unnið til sem einstaklingur, með félagsliði sínu Barcelona, og spænska landsliðinu.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2025Efnisflokkun: Bækur, Íþróttir, Knattspyrna
Jóna – atkvæði og ambögur
Ég hef alveg afleit gen,
enda fól og glanni,
rætinn, þver og illgjarn en
alveg gull af manni.
Leiðbeinandi verð: 7.480-.
Útgáfuár: 2025Efnisflokkun: Bækur, Ljóð og listir
Knattspyrnuþrautir
Í þessari bráðskemmtilegu bók er að finna margar þrautir sem tengjast knattpyrnunni. Leita þarf að kunnuglegu knattspyrnuorði í orðasúpu, finna út hvaða félag á hvaða merki, hvaða þjóðfána heimsmeistararnir eiga, hverjir eigi andlitin og svo er spurt um ensk knattspyrnulið og íslensk. Þá er þarna „samsett andlit“ og auðvitað þarf að finna út hvaða knattspyrnumenn eiga þar hlut að máli. Sitthvað fleira er einnig þarna.
Leiðbeinandi verð: 2.999-.
Útgáfuár: 2025Efnisflokkun: Bækur, Gátubækur, Knattspyrna
Pétrísk-íslensk orðbók
Pétrísk-íslensk orðabók kemur nú út í þrítugasta og sjötta sinn og hafa vinsældir hennar aukist ár frá ári og alltaf hafa bækurnar selst upp.
Nú inniheldur bókin enn fleiri orð en nokkru sinni áður, enda er hún sífellt í endurnýjun þar sem daglega bætast í sarpinn ný orð – með nýrri og áðuróþekktri merkingu!
Allt síðan 1988 hefur séra Pétur Þorsteinsson fundið skrýtin og skemmtileg orð til að setja í stað hinna hversdagslegu og litlausu. Hvað skyldu þessi orð t.d. merkja á pétrískunni: dauðadrykkur, gamanmenni, kindaklæði, líklega, sniðganga og meðgöngutími. Svörin koma vafalaust á óvart.
Leiðbeinandi verð: 3.980-.
Útgáfuár: 2025Efnisflokkun: Bækur
Síldardiplómasía
Leiðbeinandi verð: 8.980-.
Útgáfuár: 2024Efnisflokkun: Bækur, Handbækur og bækur almenns eðlis, Matarmenning, Sagnfræði, Sjávarútvegur
ÓKEI
Í Vesturheimi fæddi OK bráðlega af sér okay og okey, sem og oke um 1930 og eftir það hafa fjölmargar útgáfur bæst við. Til Íslands hefur orðið eflaust borist sem talmál, eins og víðast hvar annars staðar, en ekki er ljóst nákvæmlega hvenær. Á prenti sést það hins vegar fyrst á 4. áratug 20. aldar. Síðar eignaðist það afkvæmi hér — sambandið allt í kei(inu). En hvernig byrjaði þetta allt? Það er spurningin. Í þessari bók eru reifaðar 50 kenningar, sem allar hafa það að markmiði að reyna að svara henni.
Leiðbeinandi verð: 7.780-.
Útgáfuár: 2024Efnisflokkun: Bækur, Handbækur og bækur almenns eðlis, Sagnfræði
26 hæða trjáhúsið
Í þessari bráðfjörugu bók er hugmyndaflugið óendanlegt, eins og í fyrri bókinni um þá félaga, 13 hæða trjáhúsinu. Það eru einmitt bækur eins og þessar tvær sem börn elska að lesa og gleyma sér við og því er það ekkert skrýtið þótt þær hafi náð miklum vinsældum.
Leiðbeinandi verð: 3.380-.
Útgáfuár: 2024Efnisflokkun: Barnabækur, Bækur, Unglingabækur
Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur
Leiðbeinandi verð: 7.780-.
Útgáfuár: 2024Efnisflokkun: Bækur, Dulspeki, Handbækur og bækur almenns eðlis, Íslenskur fróðleikur, Sagnfræði