Óli Gränz
Útgáfuár: 2025
Óli Gränz er Eyjapeyi, fæddur á stríðsárunum. Hann bragðaði snemma á alvöru lífsins þegar faðir hans veiktist og hann þurfti að axla framfærslu heimilisins ásamt móður sinni.
Óli og vinur hans Hjálmar Guðnason, Hjalli, voru þeir fyrstu sem urðu vitni að upphafi Heimaeyjargossins, en í því missti Óli aleigu sína og horfði hann til að mynda í sjónvarpinu á þegar húsið hans brann til grunna, þá kominn upp á fastalandið, eins og fjölmargir sveitungar hans.
Einkalíf og ástarlíf Óla var stundum umtalað í Eyjum og einhver komst svo að orði að hann ætti „sjö börn með átta konum“! Hið rétta er hins vegar að hann eignaðist sjö börn á átta árum með fjórum konum.
Hér segir Óli frá mörgu, sem á daga hans hefur drifið, á sinn hispurslausa og skemmtilega hátt. Gleðin hefur alltaf haft yfirhöndina í lífi hans þó svo að vissulega hafi á köflum gefið hressilega á bátinn.
Leiðbeinandi verð: 8.480-.