Kvartmíluklúbburinn 1975-2025
Útgáfuár: 2026
Í þessari bók er „brunað“ í gegnum 50 ára sögu Kvartmíluklúbbsins, sem vissulega hefur upplifað tímana tvenna. Greint er frá skrautlegum aðdraganda að stofnun hans og fjölmörgum ökumönnum er fylgt eftir á misjöfnum ökutækjum, svo ekki sé meira sagt. Við sögu koma meðal annars prjónandi Volvo kryppa, græn padda, kókosbolla, sérbökuð vínabrauðslengja, fyrir nú utan allar Monzurnar, Chevrolettana, Pontiacana, Camaroana, Willysana, Yamaha-hjólin og er þá fátt upp talið. Margt er hér afar fróðlegt og þótt á móti blási á köflum er oft stutt í húmorinn. Fjölmargar myndir prýða bókina og auðvitað lætur enginn áhugamaður um akstursíþróttir þetta eðallesefni fram hjá sér fara.
Leiðbeinandi verð: 9.980-.
Flensborg – stúdentar í fimmtíu ár
Útgáfuár: 2026
Vorið 2025 voru 50 ár liðin frá því að fyrstu stúdentarnir útskrifuðust frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Skólinn á sér þó lengri sögu og afar merkilega. Í þessari bók er sú saga rakin, auk þess sem 22 Flensborgarstúdentar deila með okkur minningum sínum úr skólanum og eru þær býsna skemmtilegar og á köflum bráðfyndnar.
Leiðbeinandi verð: 8.480-.
Ég verð að segja ykkur – Ingvar Viktorsson lætur gamminn geisa
Útgáfuár: 2022
Hér lætur Ingvar Viktorsson, fyrrum kennari, bæjarstjóri og íþróttafrömuður, gamminn geisa og sögurnar eru óteljandi. Guðjón Ingi Eiríksson ritstýrði bókinni, en í ritnefnd voru auk hans Guðmundur Árni Stefánsson, Lúðvík Geirsson og Orri Þórðarson. Og það má alveg láta það fylgja með að ritstjórnin þurfti að beita Ingvar hörðu til að fá hann til að fallast á að segja okkur frá viðburðaríkri ævi sinni, en það tókst þó og ættu margir að hafa fróðleik og skemmtun af frásögn hans. Rétt er að láta eina sögu úr bókinni fylgja hér með:
Einu sinni ætlaði ég að fá vin minn og félaga, Þóri heitinn Jónsson, með mér í golfið og við fórum út á Hvaleyri. Ég stillti upp bolta og bað Þóri að fylgjast með. Ég valdi kylfu og sló, en hitti ekki boltann, reyndi aftur og það sama gerðist, ég hitti ekki boltann. Þegar mér hafði mistekist ætlunarverk mitt í þriðja skiptið missti Þórir þolinmæðina og sagði: „Þetta er helvíti sniðugt, en til hvers er boltinn?“
Leiðbeinandi verð: 7.680-.

