Ævintýraför Stubbs og Stubbalínu í Stafalandið (lestrarkennsluaðferðin sjáðu – heyrðu – finndu)

Útgáfuár: 2021

kapa_stafirnir.indd

Í þessari bók dr. Valdísar Ingibjargar Jónsdóttur, kennara og heyrnar- og talmeinafræðings, er kynnt lestrarkennsluaðferð sem leitast við að persónugera stafina og hljóðin og sveipa þannig innlögnina þeim ævintýrablæ sem höfðað gæti til barna. Stubbur og Stubbalína eru lítil kríli sem fundu stafabók, sem í þeirra augum var bara full af alls konar krassi og kroti sem þau skildu ekkert í. Þau fengu því þá snjöllu hugmynd að fara í Stafalandið þar sem allir stafirnir eiga heima og læra að þekkja þá og hljóðin þeirra svo þau gætu nú skilið hvað skrifað var í þessa ágætu stafabók þeirra. Í Stafalandinu hitta þau stafina einn af öðrum og fá að vita hvað þeir heita. Jafnframt fá þau að vita að hver stafur á sitt sérstaka hljóð sem oft líkist þeim hljóðum sem við sjálf gefum frá okkur undir ýmsum kringumstæðum. Þar má nefna hljóð eins og:

/ s / (S) sem við gefum frá okkur sem hvæshljóð þegar við erum reið.

/ eí / (EY, EI) sem í raun eru gleðihljóð og geta heyrst í skríkjum.

/ m / (M) sem við gefum frá okkur þegar okkur finnst eitthvað gott.

/ a / (A) sem við gefum frá okkur þegar við erum þreytt.

/ o / (O) sem við gefum frá okkur í óþolinmæðisköstum.

/aú / (Á), / oú / (Ó), / aí / (Æ) sem eru sársaukahljóðin.

Það er þekkt að við eigum auðveldara með að læra og festa í minni ef við getum fundið einhver tengsl milli þess sem við erum að læra og þess
sem við þegar þekkjum.

Leiðbeinandi verð: 6.980-.

Efnisflokkun: Bækur, Handbækur og bækur almenns eðlis, Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Málörvun – Að læra málið strik fyrir strik

Útgáfuár: 2020

malorvun_kapa.inddHér er á ferðinni stórskemmtilegt teikniverkefni sem hentar vel inn á öll skólastig og þjálfar orðaforða, hlustun, rökhugsun, nákvæmni og fleira til. Það byggir á því að kennari og nemandi/nemendur teikna saman, kennari þó alltaf á undan. Hver mynd er brotin niður í frumeiningar og kennarinn útskýrir á einfaldan en skýran hátt hlutverk eininganna ásamt því að leita jafnframt eftir rökfræðilegum ályktunum. Segja má að bókin henti til kennslu elstu börnum á leikskóla og þeim yngstu í grunnskóla, auk þess nemendum með ýmis frávik, s.s. einstaklingum með heyrnarskerðingu, þroskahömlun, tal- og málþroskaröskun, einhverfu, ofvirkni, athyglisbrest og/eða einbeitingarskort og tvítyngi. Bókin hefur verið tilraunakennd af grunn- og leikskólakennurum, einnig af þroskaþjálfa, og mælist afar vel fyrir. Umsagnir þeirra er m.a. að finna í bókinni.

Rétt er að taka fram að bókin er gormuð og eykur það notagildi hennar til muna. Hún er í A-4 broti og 220 blaðsíður að lengd.

Leiðbeinandi verð: 8.480-.

Efnisflokkun: Handbækur og bækur almenns eðlis, Heilsa, lífstíll og forvarnir, Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Gunnlaugs saga ormstungu

Útgáfuár: 2009

gunnlaugssagaBókin er fyrst og fremst ætluð grunnskólanemendum og hefur það fram yfir fyrri skólaútgáfur að orðskýringar hafa verið auknar, auk þess sem myndir og teikningar prýða hana.

Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, margreyndur kennari á öllum skólastigum og hagyrðingur, annaðist útgáfuna.

Leiðbeinandi verð: 1.980-.

Uppseld.

 

Efnisflokkun: Náms- og kennslubækur

Gullvör 3 – verkefnabók

Útgáfuár: 2008

gull_iii_verk

Gullvör 3, eftir Gunnar Finnsson, er verkefnabók við samnefnda bók eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson.

Leiðbeinandi verð: 990-.

Uppseld.

Efnisflokkun: Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Gullvör 2 – verkefnabók

Útgáfuár: 2008

gull_ii_verkGullvör 2, eftir Gunnar Finnsson, er verkefnabók við samnefnda bók eftir Ragnar Ing Aðalsteinsson.

Leiðbeinandi verð: 1.190-.

Uppseld.

 

Efnisflokkun: Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Gullvör 1 – verkefnabók

Útgáfuár: 2008

gull_i_verkGullvör 1, eftir Gunnar Finnsson, er verkefnabók við samnefnda bók eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson.

Leiðbeinandi verð: 890-.

Uppseld.

 

Efnisflokkun: Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Sveinn í djúpum dali

Útgáfuár: 2007

sveinn_iKennslubók um skáldið og náttúrufræðinginn Jónas Hallgrímsson, ætluð 8.-10. bekk.

Leiðbeinandi verð: 2.280-.

Uppseld.

 

Efnisflokkun: Íslenskan - málið okkar, Ljóð og listir, Náms- og kennslubækur

Gullvör – kennsluleiðbeiningar

Útgáfuár: 2006

gull_kennsluKennsluleiðbeiningar við Gullvararbækurnar I-III eftir Ragnar Ingi Aðalsteinsson.  Einungis fáanlegt á tölvutæku formi.

Leiðbeinandi verð: 5.900-.

Uppseld.

 

Efnisflokkun: Íslenskan - málið okkar, Náms- og kennslubækur

Allir geta eitthvað, enginn getur allt

Útgáfuár: 2003

allir_geta_eitthvadFjölmenningarleg kennsla frá leikskóla til framhaldsskóla.  Nauðsynleg handbók fyrir alla kennara.

Uppseld.

Efnisflokkun: Náms- og kennslubækur

Vísnaverkefni

Útgáfuár: 2002

visnaverkKennslubók í vísnagerð sem samanstendur af 40 vísnaverkefnum.  Þeir sem vilja læra að setja saman réttkveðna vísu ættu að finna hér eitthvað við sitt hæfi.

Leiðbeinandi verð: 990-.

Uppseld

Efnisflokkun: Ljóð og listir, Náms- og kennslubækur
Eldra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is