Málörvun – Að læra málið strik fyrir strik

malorvun_kapa.inddHér er á ferðinni stórskemmtilegt teikniverkefni sem hentar vel inn á öll skólastig og þjálfar orðaforða, hlustun, rökhugsun, nákvæmni og fleira til. Það byggir á því að kennari og nemandi/nemendur teikna saman, kennari þó alltaf á undan. Hver mynd er brotin niður í frumeiningar og kennarinn útskýrir á einfaldan en skýran hátt hlutverk eininganna ásamt því að leita jafnframt eftir rökfræðilegum ályktunum. Segja má að bókin henti til kennslu elstu börnum á leikskóla og þeim yngstu í grunnskóla, auk þess nemendum með ýmis frávik, s.s. einstaklingum með heyrnarskerðingu, þroskahömlun, tal- og málþroskaröskun, einhverfu, ofvirkni, athyglisbrest og/eða einbeitingarskort og tvítyngi. Bókin hefur verið tilraunakennd af grunn- og leikskólakennurum, einnig af þroskaþjálfa, og mælist afar vel fyrir. Umsagnir þeirra er m.a. að finna í bókinni.

Rétt er að taka fram að bókin er gormuð og eykur það notagildi hennar til muna. Hún er í A-4 broti og 220 blaðsíður að lengd.

Leiðbeinandi verð: 8.480-.

Útgáfuár: 2020
Efnisflokkun: Bækur, Handbækur og bækur almenns eðlis, Bækur, Heilsa, lífstíll og forvarnir, Bækur, Íslenskan - málið okkar, Bækur, Náms- og kennslubækur

Panta

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is