
Manchester United – spurningabók
Útgáfuár: 2013
Hvað veistu um Rauðu djöflana? Bráðskemmtileg spurningabók um frægasta félagslið veraldar, Manchester United.
Frá hvaða liði keypti Manchester United David de Gea?
Hvert er kunnuglegra nafn á leikmanninum Luis Carlos Almeida da Cunha sem gekk í raðir Manchester United árið 2007?
Wayne Rooney er númer 10, en hvert var fyrsta númerið hans hjá Manchester United?
Hverrar þjóðar er Ryan Giggs?
Keppnistímabilið 2012-13 fór Manchester United nokkuð létt með Norwich á Old Trafford og sigraði það 4-0. Wayne Rooney skoraði fjórða og síðasta markið, en hver skoraði hin þrjú?
Þetta og margt fleira í þessari einstöku spurningabók.
Leiðbeinandi verð: 1.290-.
Uppseld.
Handknattleiksbókin I-II
Útgáfuár: 2012
Í þessu glæsilega tveggja binda verki er rakin saga handknattleiksins á Íslandi. Ævintýrið hófst árið 1920 og spannar bókin yfir 90 ár, eða til 2010. Fjallað er rækilega um upphaf þessarar íþróttagreinar, sem ávallt hefur snert sterkar taugar í þjóðarsálinni, og þá menn sem mörkuðu fyrstu sporin. Íslandsmótinu eru gerð góð skil sem og bikarkeppninni og Evrópuleikjum félagsliðanna. Og vitaskuld fer feikimikið púður í landsliðin okkar sem borið hafa hróður lands og þjóðar víða um heim.
Handknattleiksbókina I-II ættu allir unnendur handknattleiks sem og íþrótta almennt að lesa.
Leiðbeinandi verð: 18.900-.
Uppseld.
Fótboltaspilið
Útgáfuár: 2011
FÓTBOLTASPILIÐ, eftir Guðjón Inga Eiríksson, er komið út. Það inniheldur 1800 fótboltaspurningar og býður upp á skemmtilega keppni tveggja eða fleiri. Þarna er m.a. að finna spurningar um enska boltann, íslenska boltann, Meistaradeildina og auðvitað margt fleira. Fótboltaspilið er allt í senn fræðandi, skemmtilegt og spennandi og vafalítið munu knattspyrnuunnendur eiga góðar stundir yfir því á næstu vikum og mánuðum.
Fótboltaspilið fæst vitaskuld hjá Bókaútgáfunni Hólum (pöntunarsími 557-5270, netfang: holar@holabok.is), en einnig í flest öllum búðum og stórmörkuðum sem selja bækur.
Leiðbeinandi verð: 7.980-.
Sá besti!
Útgáfuár: 2007
Portúgalinn Cristiano Ronaldo sló svo sannarlega í gegn með Manchester United. Hér er rakin saga hans fram til 2007; bæði sigrar og sorgir. Frábærar myndir prýða bókina.
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Uppseld.
Chelsea 1905-2005
Útgáfuár: 2005
Chelsea er tvímælalaust spútniklið fyrsta áratugar tuttugustu og fyrstu aldarinnar, en ekki hefur árangurinn alltaf verið glæsilegur, þótt félagið hafi oft og tíðum haft ágæta knattspyrnumenn innan sinna raða. Á meðal knattspyrnukappa sem stíga hér fram í sviðsljósið má nefna Peter Osgood, Charlie Cooke, Ray Wilkins, Kerry Dixon, Ruud Gullit, John Terry, Frank Lampard, Gianfranco Zola og Eið Smára Guðjohnsen. Og auðvitað er minnst á framkvæmdastjórann sigursæla og skrautlega, Jose Mourinho.
Uppseld.
Alltaf í boltanum
Útgáfuár: 2004
Gullmolar úr knattspyrnuheiminum; bæði orðsnilld og það sem viðkomandi hefði betur ósagt látið.
Leiðbeinandi verð: 1.980-.
Uppseld.
Bestu knattspyrnulið Evrópu
Útgáfuár: 2004
Hér er rakin saga tólf bestu knattspyrnuliða Evrópu frá stofnun þeirra til ársins 2003. Liðin eru: AC Milan. Ajax, Arsenal, Bayern München, Barcelona, Juventus, Liverpool, Manchester United, Porto, Real Madrid og Valencia.
Uppseld.
Áfram Ísland!
Útgáfuár: 2002
Hér er fjallað um íslenska karlalandsliðið í handknattleik og frábæran árangur þess á Evrópumótiinu í Svíþjóð í janúar 2002. Leikir liðsins eru krufnir til mergjar, sagt frá því sem gerðist á bak við tjöldin og strákunum okkar gerð góð skil, meðal annars í einstökum viðtölum við Ólaf Stefánsson, einn besta handboltamann heims, Sigfús Sigurðsson og Patrek Jóhannesson. Áfram Ísland – íþróttabókin í ár!
Uppseld.
Rauði herinn-Saga Liverpool 1892-2001
Útgáfuár: 2001
Liverpool á sér magnaða sögu og hér er hún rakin; sorgum og sigrum liðsins gerð góð skil og helstu knattspyrnukappar og framkvæmdastjórar félagsins dregnir fram í sviðsljósið. Þeir sem komnir eru til vits og ára muna vafalítið eftir stjörnum á borð við Kevin Keegan, Tommy Smith, Greame Souness, Ian Rush, Kenny Dalglish, Bruce Grobbelaar og Mark Lawrenson, svo einhverjir séu hér nafngreindir af þeim mikla fjölda sem koma við sögu í bókinni sem ætti að vera til á hverju einasta Púllara-heimili.
Uppseld.
Stoke City í máli og myndum
Útgáfuár: 2000
Hér er í stuttu máli rakin saga Stoke City frá stofnun félagsins 1868 til 2000. Fjallað er um sigra þess og sorgir, minnissstæða leikmenn á borð við Stanley Matthews og Gordon Banks sem og framkvæmdastjóra, auk þess sem talsverðu púðri er eytt í yfirtöku Íslendinganna á félaginu og þann sem þá tók þar við stjórnartaumunum, Skagamanninn Guðjón Þórðarson.
Uppseld.