Líkið er fundið – sagnasamtíningur af Jökuldal

Sigurður Aðalsteinsson frá Vaðbrekku sér „draug“. Kolbeinn Arason flýgur með lík. Gunnar á Fossvöllum fullyrðir að Akureyrardeildin í Helvíti sé full. Þuríður Hallgrímsdóttir á Brú fær bréf frá hatursmanni sínum. Jón í Möðrudal auglýsir eftir ráðskonu. Séra Sigurjón Jónsson býr til nýtt Faðirvor. Reiðhestur úr Hrafnkelsdal stendur á haus inni við Kárahnjúka. Baldur Pálsson frá Aðalbóli segir frá eðlisfræðitilraunum og Haukur á Hauksstöðum fer sér til hressingar á Heilsuhælið í Hveragerði en fær þá óvænt skeyti frá Hákoni Aðalsteinssyni.

Í þessari bók er ógrynni skemmtilegra sagna og vísna, enda eru Jökuldælingar þekktir fyrir létta lund langt aftur í ættir og leyfa nú öðrum að njóta þess með sér.

Leiðbeinandi verð: 6.580-.

Útgáfuár: 2022
Efnisflokkun: Austurland, Bækur, Bækur, Gamansögur, Bækur, Handbækur og bækur almenns eðlis, Bækur, Íslenskur fróðleikur, Bækur, Ljóð og listir

Panta

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is