Úr handraða Ólafs landlæknis

Útgáfuár: 2004

ur_handrada_olafs

Afmælisrit tileinkað Ólafi Ólafssyni, fyrrverandi landlækni, 75 ára, þann 11. nóvember 2003.

Uppseld.

Efnisflokkun: Afmælisrit, Sagnfræði

Aðalgeirsbók

Útgáfuár: 2004

Afmælisrit tileinkað Aðalgeiri Kristjánssyni, sagnfræðingi, áttræðum þ. 30. maí 2004.adalgeirsbok

Uppseld.

Efnisflokkun: Afmælisrit, Sagnfræði

Uppgangsár og barningsskeið

Útgáfuár: 2003

uppgangsarÍ þessu öðru bindi Sögu sjávarútvegs á Íslandi segir frá því þeagr vélaraflið hélt innreið sína og sjávarútvegur Íslendinga gjörbreyttist á fáeinum árum. Bátar og togarar ösluðu um öll mið og hafið tók sinn toll. Jón Þ. Þór fjallar á einstakan hátt um sjávarútveg Íslendinga. Hér er á ferðinni grundvallarrit um íslenska sögu og baráttuna við Ægi.

Leiðbeinandi verð: 6.980-.

Uppseld

Efnisflokkun: Sagnfræði, Sjávarútvegur

Hitler og seinni heimsstyrjöldin

Útgáfuár: 2002

hitlerEkkert sagnfræðirit hefur vakið jafnmiklar og harðvítugar deilur og þessi bók þekktasta sagnfræðings Englendinga, A. J. P. Taylors, um Hitler og rætur seinni heimsstyrjaldar. Taylor hefur verið sakaður um að hvítþvo Hitler. Sjálfur segist hann hafa skrifað þessa bók til að svala forvitni sinni en til þess hafi hann orðið að horfa framhjá lífseigum goðsögnum um heimsstyrjöldina síðari. Um þetta rit segir Þór Whitehead að enginn sem vilji kynna sér uppruna ófriðarins geti ,,leyft sér að láta það framhjá sér fara“.

Uppseld.

Efnisflokkun: Sagnfræði, Stríð

Sjósókn og sjávarfang

Útgáfuár: 2002

sjosokn_og_sjavarfangHér er hrundið úr vör stórvirki í íslenskri útgáfusögu sem er 1. bindið af þremur í Sögu sjávarútvegs á Íslandi. Ekkert hefur skipt Íslendinga eins miklu máli og sjávaraflinn. Hann hefur gefið þjóðinni líf en líka krafist stórra fórna. Vegna hans löðuðust erlendir sjómenn að landinu og stundum urðu mannvíg út af fiskinum við Ísland. Hér rekur Jón Þ. Þór þessa sögu og fjallar um upphaf fiskveiða við Ísland, hina áhættusömu árabátaútgerð og ævintýralega öld seglskipanna.

Leiðbeinandi verð: 6.980-.

Tilboðsverð: 2.980-.

Efnisflokkun: Sagnfræði, Sjávarútvegur

Bein úr sjó

Útgáfuár: 2002

bein_ur_sjoÚtgerðarsaga Grýtubakkahrepps er ótrúlegt ævintýri um smáplássið sem um tíma var ein stærsta útgerðarstöð landsins. Á einkar líflegan og skemmtilegan hátt segir Björn þessa sögu sem spannar eina og hálfa öld, frá hákarlaveiðum upp úr 1850 til frystiskipaútgerðar undir lok 20. aldar. Bókin er ríkulega myndskreytt.

Uppseld.

Tengsl: Efnisflokkun: Sagnfræði, Sjávarútvegur

Mannkynið og munúðin

Útgáfuár: 2001

mannkynid_og_munudinHér rekur skoski fræðimaðurinn og rithöfundurinn Reay Tannahill sögu kynlífs og hugmynda fólks um það allt frá árdögum mannkynsins og fram á okkar daga. Hún byrjar á forsögulegum tíma og lýsir því hvernig kynlíf og kynlífsaðferðir áttu þátt í því að maðurinn skildist frá frændum sínum öpunum, en síðan segir frá þróun mála á öllum öldum, í öllum heimshlutum, áhrifum hinna ýmsu trúar- og heimspekikerfa á viðhorf fólks til kynlífs, stöðu þess í bókmenntum og listum, hvernig iðkun þess breyttist eftir breytilegri stöðu kynja og stétta í hinum ýmsu samfélögum og menningarheimum o.s.frv. Ekkert er undan dregið og Tannahill fjallar af jafnmiklu hispursleysi um það sem kalla má „venjulegt“ kynlíf í hjónasæng (ef það er þá orðið nokkuð venjulegra en annað), vændi, samkynhneigð og ýmsar afbrigðilegar hvatir og hegðun.

Uppseld.

Efnisflokkun: Sagnfræði

Úr fórum þular

Útgáfuár: 2001

ur_forum_thularHinn þjóðkunni útvarpsþulur, Pétur Pétursson, fer hér á kostum í bráðskemmtilegum frásögnum af horfnum tíma. Í 35 þáttum fer hann víða; segir m.a. frá íslenska hundinum sem hlustaði á breska forsætisráðherrann, stúdentasvalli á 19. öld, fisksölum í Reykjavík og íbúum í Vesturbænum. Pétur er fræðaþulur eins og þeir gerast bestir. Blaðakóngar og bissnesmenn, höfðingjar og hefðarfrúr, Ríkarður Jónsson myndhöggvari og frú Dinesen í Róm; frá öllu þessu segir Pétur svo unun er að lesa.

Uppseld.

Efnisflokkun: Sagnfræði

Aldarreið

Útgáfuár: 1999

aldarreidAldarreið er saga Hestamannafélagsins Hrings en um leið saga hestamennsku í Svarfaðardal og Dalvík á 20. öld.  Bókina prýða um 170 ljósmyndir af hestum og hestamönnum.

Uppseld.

Tengsl: , Efnisflokkun: Íþróttir, Sagnfræði

Kappar og kvenskörungar

Útgáfuár: 1998

kapparÞessi bók inniheldur æviþætti fjölmargra fornkappa og kvenskörunga, til dæmis: Ara fróða, Auður djúpúðgu, Egils Skalla-Grímssonar, Eiríks rauða, Gísla Súrssonar, Guðríðar Þorbjarnardóttur, Gunnars á Hlíðarenda, Helgu fögru, Hallgerðar langbrókar, Hrafnkels freysgoða, Ingólfs Arnarsonar, Leifs heppna, Njáls á Bergþórshvoli og Snorra goða Þorgrímssonar.  Auk þess eru í bókinni að finna fleyg orð og ummæli úr Íslendingasögunum.

Uppseld.

Efnisflokkun: Ættfræði, Íslenskur fróðleikur, Sagnfræði
Eldra Nýrra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is