Hérasmellir
Héraðsbúar eru í aðalhlutverkum í þessari bráðskemmtilegu bók sem geymir skemmtisögur af ýmsum ógleymanlegum persónum. Steinþór Eiríksson yrkir skammarvísur, Jónas á flugvellinum fer óvart yfir strikið, Lilla Þórarins afgreiðir Alla ríka, Kjartan Ingvarsson reynir fyrir sér í leiklistinni, Jón dýralæknir stýrir hundaslag, Þórunn á Skipalæk spænir rassinn úr buxunum, Hákon Aðalsteinsson skilar skýrslu um hestamenn, Frissi í Skóghlíð kennir þorstaleysis, Jón Egill týnir héraðslækninum í lausasnjó, Villi Skjöldur veltir á hærgri hliðina, Jói Þrándur lætur engan eiga inni hjá sér, Stórval fer í sögulega læknisaðgerð og er þá fátt upp talið.
Leiðbeinandi verð: 3.890-.
Útgáfuár: 2021