Iðnskóli í eina öld
Útgáfuár: 2004
Iðnskólinn í Reykjavík á aldarafmæli um þessar mundir. Í fyrstu var hann einungis fábreyttur kvöldskóli en í dag er liðlega 2000 nemendum boðið upp á 820 námsgreinar á 35 námsbrautum. Hér er rakin saga þessa merka skóla sem jafnframt er nátengd sögu iðnaðar á Íslandi. Því ætti enginn iðnaðarmaður eða áhugamaður um atvinnusögu þjóðarinnar að láta hana framhjá sér fara.
Uppseld.
Úr handraða Ólafs landlæknis
Útgáfuár: 2004
Afmælisrit tileinkað Ólafi Ólafssyni, fyrrverandi landlækni, 75 ára, þann 11. nóvember 2003.
Uppseld.
Aðalgeirsbók
Útgáfuár: 2004
Afmælisrit tileinkað Aðalgeiri Kristjánssyni, sagnfræðingi, áttræðum þ. 30. maí 2004.
Uppseld.
Stef úr steini
Útgáfuár: 2003
Grípandi, falleg, vekjandi – þannig yrkir Jón Bjarman. Stefin hans láta engan ósnortin.
Uppseld.
Afmæliskveðja til Háskóla Íslands
Útgáfuár: 2003
Afmælisrit í tilefni af 90 ára afmælis Háskóla Íslands 2001. Fjölmargar athyglisverðar greinar eru í bókinni og koma þær víða við.
Uppseld.
Slóðir mannanna
Útgáfuár: 2002
Hér eru verðlaunaverk úr árlegum samkeppnum sem MENOR hefur efnt til síðan 1989. Meðal höfunda eru Sigurður Ingólfsson, Njörður P. Njarðvík, Hjörtur Pálsson og Eysteinn Björnsson. Slóðir mannanna geymir ómetanlegan fjársjóð smásagna og ljóða. Bókin er gefin út í tilefni af 20 ára afmæli Menningarsamtaka Norðlendinga.
Uppseld.
Minningar úr Menntaskólanum í Reykjavík
Útgáfuár: 2001
Í þessu afmælisriti Menntaskólans í Reykjavík, sem gefið er út í tilefni af 215 ára afmæli skólans og er þá miðað við flutning Skálholtsskóla til Reykjavíkur, rita fjölmargir Mr-stúdentar minningar sínar frá skólanum og draga ekkert undan.
Uppseld.
Minningar úr Menntaskólanum á Akureyri
Útgáfuár: 2000
Minningar fjölmargra MA-stúdenta frá veru sinni í skólanum; bráðskemmtilegar og fróðlegar. Bókin er gefin út í tilefni af 120 ára afmæli skólans og er þá miðað við stofnun Gagnfræðaskólans á Möðruvöllum 1880.
Uppseld.
Íslenskt mál
Útgáfuár: 1996
Hér er að finna úrval úr þáttunum Íslenskt mál sem Gísli Jónsson, menntaskólakennari á Akureyri, tók saman og birtust í Morgunblaðinu um margra ára skeið. Bókin er ennfremur nokkurs konar afmælisrit Gísla en hún kom út um það leyti sem hann átti 50 ára stúdentsafmæli.
Uppseld.