Nýjasta útgáfa Hóla
Skagfirskar skemmtisögur 3 – Enn meira fjör!
Gamansemi Skagfirðinga er óþrjótandi sagnabrunnur. Hér eru óborganlegar sögur af m.a. Bjarna Har, Halla í Enni, Friðriki á Svaðastöðum, Dúdda á Skörðugili, Bjarna Marons, Pálma Rögnvalds og Álftagerðisbræðrum og sveitungum þeirra. Einnig af Jóni Drangeyjarjarli, Birni í Bæ, Ýtu-Kela, Binna Júlla, Jóhanni í Kúskerpi, Marka-Leifa, Sigga í Vík, Gunna Rögnvalds, Siggu á Eyrarlandi og fyndnum Fljótamönnum. Eru þá sárafáir nefndir af þeim sem hér stíga á stokk.
Leiðbeinandi verð: 2.980-.
Útgáfuár: 2013Sir Alex – hinn magnaði Ferguson-tími hjá Manchester United 1986-2013
Einstök saga Ferguson-tímans hjá Manchester United er viðfangsefni þessarar bókar og ekki vantar stórsjörnurnar: Cantona, Schmeichel, Solskjær, Keane, Ronaldo, Rooney, Beckham, Ferdinand, Scholes. Vidic, Giggs og Van Persie og eru þá fáir nefndir. Á bak við þetta stóð svo arkitektinn að öllum ævintýrunum, Sir Alex Ferguson. Frábær fótboltabók – stútfull af snilldartilþrifum, ruddalegum tæklingum, rauðum spjöldum og alls kyns fótboltakryddi.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2013Afmæli á Grund
Grund fagnaði 91. árs afmæli fyrir stuttu af var Helena Eyjólfsdóttir sótt norður til Akureyrar til að skemmta vistmönnum, starfsmönnum og gestum Grundar af því tilefni. Á eftirfarandi slóð má sjá brot úr veislunni (ath. söngur Helenu er aftarlega á slóðinni): http://grund.is/index.php/8-frettir/61-helena-eyjolfsdottir-afmaelisgestur
Fimmtudagur 7. nóvember 2013Allir krakkarnir 2
Þessi bók inniheldur hefðbundið nafnarím, bæði kærleiksríkt og kvikindislegt, vel á sjötta hundrað talsins. Fyrri bókin, Allir krakkarnir, kom út árið 1993 og seldist fljótlega upp. Hér er loks komin út ný bók með enn meira nafnarími. Samkvæmt hefðinni hefst meirihlutinn á orðunum „Allir krakkarnir“ og svo þarf rímið að vera sterkt og einnig þarf húmorinn oftar en ekki að vera svartur og kaldhæðinn.
Hér er hægt að skoða sýnishorn af bókinni: issuu.com/gunnarkr/docs/allir_krakkarnir2-synishorn
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Útgáfuár: 2013100 ára saga Kaupfélags Héraðsbúa
Kaupfélag Héraðsbúa, sem stofnað var árið 1909, á sér merka sögu. Það var á löngu tímabili burðarás í austfirsku atvinnulífi með mikla starfsemi bæði á Héraði og niðri á fjörðum en með breyttum viðskiptaháttum og samfélagsþróun í lok 20. aldar tók að fjara undan því. Hér rekur Jón Kristjánsson, fyrrum ráðherra, aldarsögu þessa merkilega samvinnufélags og tekur ýmsa króka til að gera frásögnina jafnt skemmtilega sem fræðandi.
Leiðbeinandi verð: 7.980-.
Útgáfuár: 2013Stuð í Súlnasalnum
Gullin ský er heiti á ævisögu söngkonunnar vinsælu, Helenu Eyjólfsdóttur. Í tilefni af útkomu hennar mun Helena á laugardagskvöldið næstkomandi stíg á svið ásamt stórhljómsveit í Súlnasal Hótel Sögu og rifja þar upp glæstan söngferil sinn í tali og tónum. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og síðan verður ball á eftir. Bók hennar verður til sölu á staðnum og því geta menn sótt bæði næringu til sálar og líkama í Súlnasalinn á laugardagskvöldið.
Þriðjudagur 5. nóvember 2013Ótrúlegt en satt!
Það er erfitt að trúa því, en þar sem kirkjubækur á Jökuldal ljúga ekki þá liggur það ljóst fyrir að hagyrðingurinn og kennarinn, Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, verður sjötugur þann 15. janúar næstkomandi. Af því tilefni hafa vinir hans og velunnarar ákveðið að gefa út vandað afmælisrit honum til heiðurs. Það verður að stærstum hluta byggt á úrvali úr ljóðum hans, allt frá grafalvarlegum kveðskap yfir í gamansaman.
Aftast í ritinu verður heillaóskaskrá. Þar geta þeir sem gerast áskrifendur að því fengið nafnið sitt birt og um leið sent afmælisbarninu kveðju. Verð þess er kr. 5.480- og er sendingargjald innifalið. Hægt er að panta bókina í síma 557-5270 og í netfanginu holar@holabok.is en útgefandi hennar er Bókaútgáfan Hólar.
F.h. ritnefndar
Þórður Helgason
Sigurður Sigurðarson
Bjarki Karlsson
Fimmtudagur 31. október 2013Einn léttur!
Vitringarnir þrír komu inn í fjárhús þar sem María og Jósef stóðu yfir jötunni þar sem nýfætt barn þeirra lá í reifum. Einn vitringanna var frekar hár í loftinu og var svo óheppinn að reka höfuðið harkalega upp í loftið. Hann greip um höfuð sér og hrópaði upp yfir sig:
„JESÚS KRISTUR!“
Þá hvíslaði Jósef að Maríu:
„Skrifaðu þetta niður, þetta er svo miklu flottara en Haraldur.“
Föstudagur 25. október 2013Gullin ský – ævisaga Helenu Eyjólfsdóttur
Í tilefni af útkomu æviminninga sinna heldur Helena Eyjólfsdóttir ferilstónleika á Græna hattinum á Akureyri næstkomandi laugardagskvöld. Hún endurtekur svo leikinn syðra í Súlnasal Hótel Sögu þann 9. nóvember. Allir aðdáendur íslenskrar dægurtónlistar láta að sjálfsögðu sjá sig á tónleikunum og lesa bókina svo á eftir.
Föstudagur 25. október 2013Villi á Brekku er engum líkur
Á morgun, fimmtudaginn 24. október, kemur úr prentsmiðju bókin Allt upp á borðið, eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku í Mjóafirði. Hann er 99 ára að aldri og allra Íslendinga elstur til að senda frá sér bók. Og það sem meira er: Þetta er ekki síðasta bókin úr smiðju hans.
Miðvikudagur 23. október 2013

