Nýjasta útgáfa Hóla
Papa Jazz
Ævisaga Guðmundar Steingrímssonar er jafnframt saga djass- og dægurtónlistar á Íslandi. Hér tvinnast þetta saman og útkoman er bæði fróðleg og skemmtileg; sögur af sviðinu og baksviðs,
spaugileg atvik og erfiðleikar og allt þar á milli.
PAPA JAZZ er bók sem enginn tónlistaráhugamaður lætur fram hjá sér fara.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Reimleikar
Íslenskar draugasögur – dagsannar og óhugnanlegar:
Skelfing hjá Skeljungi (ekki vegna bensínverðshækkunar!), Júlla káta liggur ekki kyrr, lögreglumenn frá Seyðisfirði komast í hann krappan, hús í Keflavík er andsetið, sjómaður í Eyjum leggur á flótta og margt fleira magnað í þessari bók.
Reimleikar – ekki fyrir viðkvæmar sálir.
Leiðbeinandi verð: 3.680-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Sjónhverfingar
Myndaþrautirnar í Sjónhverfingum sýna okkur svo ekki verður um villst, að það er margt sem augað ekki sér.
Leiðbeinandi verð: 1.140-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Spurningabókin 2009
Spurningabókin 2009 inniheldur fjölmargar spurningar og viðfangsefnin eru fjölbreytileg; lönd, dýr, tónlist og fótbolti svo eitthvað sé nefnt. Að sjálfsögðu er hægt að glíma við spurningarnar í einrúmi jafnt sem hóp og því er má grípa til þessarar bókar hvar og hvenær sem er – nema þá kannski ekki í jarðarförum.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Bestu barnabrandararnir – ferlega fyndnir
Bestu barnabrandararnir-ferlega fyndnir er 14 bókin í þessum vinsæla brandarabókaflokki. Og hún svíkur engan frekar en fyrri bækurnar. Bókin er sneisafull af bráðskemmtilegum bröndurum sem henta fyrir hvern sem er, algjörlega óháð aldri.
Leiðbeinandi verð: 1.140-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Gunnlaugs saga ormstungu
Bókin er fyrst og fremst ætluð grunnskólanemendum og hefur það fram yfir fyrri skólaútgáfur að orðskýringar hafa verið auknar, auk þess sem myndir og teikningar prýða hana.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, margreyndur kennari á öllum skólastigum og hagyrðingur, annaðist útgáfuna.
Leiðbeinandi verð: 1.980-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009
Rúmhendur
Ljóð Hálfdanar Ármanns Björnssonar eru þjóðleg og auðskilin en leyna þó stundum á sér og oft er stutt í glettnina. Hér er meðal annars brugðið upp svipmyndum frá störfum liðinna ára sem hvergi sjást nú unnin.
Hálfdan Ármann lést skömmu eftir útkomu bókarinnar.
Leiðbeinandi verð: 1.790-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009
Fleiri sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum
Sagnamaðurinn Sigurgeir Jónsson fer hér á kostum eins og í fyrri bókum sínum (Nýjar sögur og sagnir í Vestmannaeyjum og Viðurnefni í Vestmannaeyjum) og flytur okkur bráðskemmtilegar sögur af Eyjamönnum.
Jónas á Tanganum verður reiður, sú saga gengur um Imbu í Þorlaugargerði að hún þvælist með gömlum körlum í Reykjavík, Óskar Matt og Bjössi Snæ fara á skak með ófyrirsjáanlegum afleiðingum , Ásta Arnmundsdóttir vill fá jólasvein sem stendur, Ási í Bæ fær falskar tennur og Bjarnhéðinn Elíasson veifar sálmabók.
Leiðbeinandi verð: 2.280-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009Sandvíkur-Skrudda
Í Sandvíkur-Skruddu Páls heitins Lýðssonar, bónda og sagnfræðings í Litlu- Sandvík, kennir margra grasa. Þar má finna fjölmargar gamansögur úr Árnesþingi og meðal annars er fjallað um sýslumennina, bændurna, prestana, alþingismennina, handverksmennina, þekktasta hópferðabílstjóra Íslandssögunnar og ekki sleppur buxnasalinn.
Sandvíkur-Skrudda er sannkallaður hvalreki fyrir unnendur góðra gamansagna.
Leiðbeinandi verð: 4.280-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009
Norðfjarðarsaga II
Í Norðfjarðarsögu II (sem er tvö bindi) er fjallað um sögu byggðarinnar við Norðfjörð á tímabilinu 1895-1929 og helgast það af tvennum tímamótum; fyrrnefnda árið var löggiltur verslunarstaður á Nesi, en það síðarnefndaöðlaðist Nes kaupstaðarréttindi.
Fjöldi mynda og korta prýðir bækurnar sem skrifaðar eru af hinum alkunna fræðimanni, kennara og stjórnmálamanni, Smára Geirssyni. Hann er Norðfirðingur í húð og hár og hefur áður skrifað bækur um sína heimabyggð og reyndar fleira.
Allir sem áhuga hafa á byggðasögu og sögu Norðfjarðar ættu að njóta þess vel að lesa Norðfjarðarsögu II.
Leiðbeinandi verð: 16.900-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009