Nýjasta útgáfa Hóla
Norðfjarðarsaga II
Í Norðfjarðarsögu II (sem er tvö bindi) er fjallað um sögu byggðarinnar við Norðfjörð á tímabilinu 1895-1929 og helgast það af tvennum tímamótum; fyrrnefnda árið var löggiltur verslunarstaður á Nesi, en það síðarnefndaöðlaðist Nes kaupstaðarréttindi.
Fjöldi mynda og korta prýðir bækurnar sem skrifaðar eru af hinum alkunna fræðimanni, kennara og stjórnmálamanni, Smára Geirssyni. Hann er Norðfirðingur í húð og hár og hefur áður skrifað bækur um sína heimabyggð og reyndar fleira.
Allir sem áhuga hafa á byggðasögu og sögu Norðfjarðar ættu að njóta þess vel að lesa Norðfjarðarsögu II.
Leiðbeinandi verð: 16.900-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2009
Norðfjarðarbók
Hér má finna gríðarlega mikinn fróðleik, sem samanstendur af þjóðsögum, sögnum og örnefnaskrám, úr austustu byggð landsins, Norðfjarðarhreppi hinum forna. Sögusviðið eru allir hlutar þessa forna sveitarfélags: Norðfjörður, Hellisfjörður, Viðfjörður, Suðurbæir og Sandvík.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2008
Síldarvinnslan hf
Hér er brugðið upp svipmyndum úr hálfrar aldar sögu þessa norðfirska fyrirtækis. Það var stofnað árið 1957 og reisti í upphafi síldarverksmiðju og hóf að reka hana, en áður en áratugur var liðinn var fyrirtækið orðið hið stærsta á Austurlandi og hafði með höndum útgerð og fjölþætta fiskvinnslustarfsemi.
Uppseld.
Útgáfuár: 2007
Norðfjarðarsaga I
Norðfjarðarsaga I spannar það frá upphafi byggðar í firðinum og fram til 1895. Greint er frá landsháttum, atvinnuháttum, verslunarmálum, félagsmálum og málefnum kirkjunnar, auk þróunar byggðar og upphafi þéttbýlismyndunar á Nesi. Fjölmargar myndir og kort prýða bókina.
Leiðbeinandi verð: 7.900-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006