Endurminningar frá Eskifirði
Á Eskifirði sleit Þorsteinn Skúlason, síðar bæjarfógeti í Neskaupstað og saksóknari hjá lögreglunni í Reykjavík, barnsskónum. Þar átti hann heima frá fæðingu 1940 og þar til hann fluttist í höfuðstaðinn 1957 og hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík.
Í endurminningum sínum snýr Þorsteinn aftur á æskuslóðirnar, rifjar upp gamla tíma og dregur upp skýra mynd og skemmtilega af mannlífinu á Eskifirði og Austurlandi um miðja síðustu öld. Kunnir Austfirðingar stíga fram í sviðsljósið, sögusviðið birtist lesandanum ljóslifandi fyrir hugsskotssjónum og tíðarandinn verður honum áþreifanlegur.
Endurminningar á Eskifirði er forvitnileg heimild um horfinn tíma og ekki síður um fallega bæinn undir Hólmatindi.
Leiðbeinandi verð: 7.980-.
Útgáfuár: 2026