Jólabókaflóðið

Laugardagur 29. september 2012

Jólabókaflóð Bókaútgáfunnar Hóla er hafið.  Hver titillinn af öðrum streymir nú út úr prentvélunum: bráðskemmtilegt vísnakver Hjálmars læknis Freysteinssonar, Lán í óláni, fræðandi og ekki síður skemmtilega bók eftir Pál Jónasson, Vísnaþrautir, Glettur og gamanmál eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku, Pétrísk-íslensk orðabók, eftir séra Pétur Þorsteinsson, KenKen-talnaþrautir 1 og 2, Bestu barnabrandarana-alveg milljón og Spurningabókin 2012.  Áður eru komnar út þrekvirkið Handknattleiksbókin I-II, eftir Steinar J. Lúðvíksson, og metsölubókin Dauðinn í Dumbshafi, eftir Magnús Þór Hafsteinsson, í kilju.  Þær bækur sem eiga eftir að koma út á þessu ári hjá Hólum eru: Návígi á Norðurslóðum, eftir Magnús Þór Hafsteinsson, en hún er framhald Dauðans í Dumbshafi, Skórnir sem breyttu heiminum, eftir Hönnu Guðnýju Ottósdóttur, Skagfirskar skemmtisögur 2-meira fjör, eftir Björn Jóhann Björnsson, og Amal, sem er ævisaga Amal Tamimi, skráð af Kristjönu Guðbrandsdóttur.

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Af hverju?

Mánudagur 27. ágúst 2012

Af hverju…

… er aldrei á tali þegar maður hringir í rangt númer?

… er fólk með athyglisbrest alltaf látið taka á móti pöntunum á TAKE AWAY stöðum?

… virka pikköpplínur bara á ljótar stelpur?

… fékk Íslendingurinn sem sigraði í nektarhlaupinu á Hróarskelduhátiðinni 2012 ekki orðu frá forsetanum eins og strákarnir okkar í handboltalandsliðinu sem unnu þó bara silfrið á ólympíuleikunum í Peking?

… þurfti Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur að vera faðir drengsins sem Kristrún Ösp fæddi árið 2012 en ekki Dwight Yorke, fyrrum knattspyrnumaður hjá Manchester United?

… er s í smámæltur?

… er lesblinda ekki styttra orð?

… gleymist það alltaf  í allri megrunarumræðu að feita fólkið er öllu jöfnu mun glaðværara en horrenglurnar?

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Íslandsmet!

Fimmtudagur 26. júlí 2012

Ein af jólabókum Hóla þetta árið verður Glettur og gamanmál eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku í Mjóafirði.  Próförkin af henni er tilbúin og prentun framundan.  Bókin inniheldur gamansögur og vafalítið falla þær víða í góðan jarðveg enda bráðsmellnar.

Þess má ennfremur geta að Vilhjálmur verður 98 ára síðar á þessu ári og er hann elstur allra á Íslandi til að skrifa bók.  Það má einnig nefna að hann er klár með handrit að bók fyrir árið 2013 og einnig fyrir 2014.  Geri aðrir betur.

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Einn léttur!

Mánudagur 21. maí 2012

Morguninn eftir brúðkaupsnóttina fór eiginmaðurinn hljóðlega á fætur, læddist niður í eldhús og bjó til frábæran morgunverð sem hann færði konu sinni. Hún varð himinlifandi.

„Tókstu eftir því sem ég gerði fyrir þig?“ spurði maðurinn.

„Hverju smáatriði,“ malaði frúin alsæl.

„Gott, svona vil ég nefnilega fá morgunverðinn minn á hverjum morgni.“

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Bjarni E. Guðleifsson sjötugur

Þriðjudagur 8. maí 2012

Þótt ótrúlegt megi virðast verður Bjarni E. Guðleifsson, náttúrufræðingur og fjallgöngugarpur á Möðruvöllum, sjötugur  þann 21.  júní næstkomandi.  Hann hefur lengst af unnið sem sérfræðingur hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins (RALA), en síðustu árin hefur hann gegnt stöðu prófessors við Landbúnaðarháskóla Íslands.  Þá hefur hann skrifað fjölmargar greinar um náttúruvísindi og önnur hugðarefni í blöð og tímarit og ennfremur staðið að nokkrum bókum um þau efni.  Einnig hefur Bjarni, sem er mikill áhugamaður um fjallgöngur og hollt og heilbrigt líferni, skrifað tvær fjallgöngubækur, Á fjallatindum og Svarfaðardalsfjöll, sem báðar hlutu góðar viðtökur en eru nú uppseldar.

Vegna fyrrgreindra tímamóta í lífi Bjarna ákvað Bókaútgáfan Hólar að gefa út afmælisrit honum til heiðurs og mun það nefnast Úr hugarheimi – í gamni og alvöru.  Mun bókin, sem verður í kilju, innihalda 30 pistla eftir afmælisbarnið sem eru bæði fræðandi og skemmtilegir, eins og við má búast.

Í bókinni verður heillaóskaskrá – Tabula gratulatoria – og þar verða skráð nöfn þeirra einstaklinga, fyrirtækja, félaga og stofnana sem vilja senda Bjarna E. Guðleifssyni afmæliskveðju og jafnframt gerast áskrifendur að bókinni, en hún mun kosta kr. 4.380 m/sendingargjaldi og er áskriftarverðið innheimt fyrirfram.

Hægt er að gerast áskrifandi að bókinni og skrá sig á heillaóskaskrána í síma 587-2619 og í netfangi holar@holabok.is

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Einn léttur í sumarbyrjun

Fimmtudagur 19. apríl 2012

Þrír ungir piltar fengu lélegar einkunnir í kynfræðslu. Jói fékk D+, Gummi D- og Nonni fékk F.

„Einn daginn fær tíkin sko að finna fyrir því,“ sagði Jói bálreiður og var að tala um Guðríði kennslukonu.

„Já, við náum henni og klæðum hana úr öllum fötunum,“ sagði Nonni.

„Já, og svo skulum við sparka í punginn á henni,“ sagði Gummi.

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Einn góður!

Þriðjudagur 10. apríl 2012

Unga móðirin var hjá geðlækninum.

„Þú hefur allt of miklar áhyggjur af barninu þínu,“ sagði hann. „Ég ætla að skrifa upp á róandi lyf sem þú þarft að taka tvisvar á dag. Komdu svo til mín aftur í næstu viku.“

Viku seinna kom konan og geðlæknirinn spurði:

„Hafa lyfin haft einhver áhrif?“

„Já,“ svaraði konan. „Þau hafa gert algjört kraftaverk.“

„Og hvernig hefur svo barnið þitt það?“

„Hverjum er ekki sama!“

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Handknattleikssagan

Mánudagur 2. apríl 2012

Með vorinu kemur út mikið glæsiverk, Handknattleiksbókin, eftir Steinar J. Lúðvíksson.  Þar er rakin er saga  handknattleiksíþróttarinnar á Íslandi allt frá því að hún nam hér land upp úr 1920 og fram til ársins 2011. Fjallað er um alla þætti þessarar óformlegu þjóðaríþróttar okkar enda af nógu að taka í litríkri sögu hennar.  Fyrirferðarmestu kaflar bókarinnar fjalla um Íslandsmótið í handknattleik og um landsleiki sem Íslendingar hafa leikið frá fyrstu tíð.

Í kaflanum um Íslandsmótið er sagt frá mótum karla og kvenna, inni og úti, frá því það var fyrst haldið í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu árið 1940. Greint er frá gangi mála í mótinu frá ári til árs og sagt frá eftirminnilegum leikjum og leikmönnum. Einkum er fjallað um efstu deild en einnig sagt frá keppni í öðrum deildum.

Í kaflanum um landsleikina er sagan rakin frá því að Íslendingar léku fyrst landsleik árið 1950. Fjallað er um leikina frá ári til árs, greint frá öllum leikjum karla og kvenna svo og ungmennaliða þegar þeim tókst best til. Staldrað er sérstaklega við mót, svo sem EM, HM og Ólympíuleika og sagt frá eftirminnilegum atburðum einstakra leikja.

Handknattleiksbókin verður í tveimur bindum, alls á níunda hundrað blaðsíður.  Fjöldi mynda prýðir þetta mikla verk og hafa margar þeirra ekki birst á opinberum vettvangi.

Þeir sem vilja tryggja sér Handknattleiksbókina í áskrift (á 16.900 í stað 19.000 – og skipta má greiðslunum í allt að átta hluta án aukakostnaðar) og það á kynningarverði er bent að hafa samband við Ólaf Hrólfsson í s. 861-9407 eða senda honum póst í netfang olibok@simnet.is

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Dauðinn í Dumbshafi-kilja

Þriðjudagur 13. mars 2012

Dauðinn í Dumbshafi, eftir Magnús Þór Hafsteinsson, gerir það ekki endasleppt og hafa frábærir dómar og glæsilegt innslag í Kiljunni sitt að segja.  Nú er harðspjaldaútgáfan uppseld og því er bókin væntanleg í kilju í næsta mánuði.

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar

Á tímum nauðsynlegrar hreyfingar!

Þriðjudagur 6. mars 2012

Læknirinn minn sagði mér að byrja á líkamsræktaræfingum – smátt og smátt.  Átakið hjá mér hófst í dag, þá keyrði ég framhjá búð sem selur íþróttafatnað.

Efnisflokkun: Fréttir og tilkynningar
Eldra Nýrra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is