Fjallaþytur
Útgáfuár: 2010
Fjallaþytur, úrval úr ljóðum Hákonar Aðalsteinssonar, kemur út þann 13. júlí nk. í tilefni af því að þá eru 75 ár liðin frá fæðingu hans, en hann lést í fyrra. Margar ljóðaperlurnar er hér að finna, sumar alvarlegar en aðrar af léttara taginu – allar þó bráðskemmtilegar. Þarna er meðal annars að finna allmörg ljóð sem ekki hafa birst áður.
Leiðbeinandi verð: 5.680-.
Uppseld.
Undir breðans fjöllum
Útgáfuár: 2010
Undir breðans fjöllum er ljóðasafn Þorsteins Jóhannssonar (f. 1918, – d. 1998), kennara, skólastjóra og margt fleira, að Svínafelli í Öræfum. Hann var hagyrðingur og skáld. Hin viðameiri kvæði hans vitna um þá þekkingu og tök sem hann hafði á skáldskap. Hefðbundið ljóðform var honum svo tamt og meðfærilegt að vísur urðu oft til með engum fyrirvara hvenær sem tilefni gafst. Þannig festi hann reynslu sína og æviferil í braglínur, meitlaðar og fágaðar af smekkvísi ljóðunnandans, ýmist fullar af kímni og góðlátlegu gamni eða markaðar af reynslu og íhugun. Milli línanna má skynja höfundinn, ötulan, ókvalráðan, traustan og hjartahlýjan mann sem ann tungu, sögu, landi og þjóð.
Leiðbeinandi verð: 3.980-.
Uppseld.
Pétrísk-íslensk orðabók
Útgáfuár: 2010
Séra Pétur Þorsteinsson, prestur í Óháða söfnuðinum í Reykjavík, hefur í áraraðir safnað orðum sem vel gætu þýtt eitthvað annað en þau í rauninni gera. Útkoman úr þessu er vægast sagt bráðsmellin og kom það berlega í ljós þegar Bókaútgáfan Hólar gaf út bók eftir sérann, með sama heiti og þessi, fyrir tveimur árum. Hún seldist upp á skömmum tíma og hefur síðan verið ófáanleg. Hér er svo ný útgáfa komin með fjölmörgum nýjum orðum og er hún gefin út 5/5 í tilefni af 55 ára afmæli séra Péturs.
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Uppseld.
Saga Félags járniðnaðarmanna
Útgáfuár: 2010
Í þessari bók er rakin saga Félags járniðnaðarmanna, en 90 ár eru nú liðin frá stofnun þess. Sagt er frá baráttu félagsins fyrir bættum kjörum og aðbúnaði, auknum réttindum og þóun málmiðnaðar á 20. öldinni. Þá sagt frá baráttu kommúnista og hægri manna um yfirráðin í félaginu og er þá fátt eitt nefnt.
Leiðbeinandi verð: 6.900-.
Uppseld.
Læknir í blíðu og stríðu
Útgáfuár: 2010
Páll Gíslason læknir, skátahöfðingi og borgarfulltrúi hefur á langri ævi komið víða við og kynnst mörgu og misjöfnu. Hann var brautryðjandi í æðaskurðlækningum og hóf slíkar aðgerðir fyrstur lækna á Íslandi við sjúkrahúsið á Akranesi og byggði síðan upp æðaskurðdeild á Landspítalanum. Þá hefur hann verið skáti frá 12 ára aldri og unnið mikið og óeigingjarnt starf í þeirra þágu. Ennfremur lét hann til sín taka í pólitíkinni í fjölmörg ár og var til dæmis lykilmaður við gerð hinnar umdeildu byggingar, Perlunnar.
Þeir sem hafa gaman af græskulausum sögum ættu alls ekki að láta þessa bók framhjá sér fara. Hér fljóta mörg gullkornin með og þess utan eru dregnir fram í sviðsljósið menn á orð við Albert Guðmundsson, sem ekki var hátt skrifaður hjá Páli, og Davíð Oddsson.
Leiðeinandi verð: 5.880-.
Uppseld.
Orrustan um Spán
Útgáfuár: 2009

Í júlí 1936 gerðu hershöfðingjar, undir forystu Francos, uppreisn gegn ríkisstjórn Spánar. Uppreisnin varð fljótt að borgarastyrjöld þar sem Franco fékk stuðning Þjóðverja og Ítala en ríkisstjórnin var m.a. studd af erlendum sjálfboðaliðum, þar á meðal Ernest Hemmingway. Þetta er mögnuð bók um hatrömm átök.
Þetta er af mörgum talin besta bókin um borgarastyrjöldina á Spáni og ætti það ekki að koma neinum á óvart, enda er höfundur bókarinnar, Bretinn Antony Beevor, einn allra besti sagnfræðingur veraldar þegar kemur að stríðsátökum.
Leiðbeinandi verð: 5.980.-
Uppseld.
Orrustan um Spán
Útgáfuár: 2009

Í júlí 1936 gerðu hershöfðingjar, undir forystu Francos, uppreisn gegn ríkisstjórn Spánar. Uppreisnin varð fljótt að borgarastyrjöld þar sem Franco fékk stuðning Þjóðverja og Ítala en ríkisstjórnin var m.a. studd af erlendum sjálfboðaliðum, þar á meðal Ernest Hemmingway. Þetta er mögnuð bók um hatrömm átök.
Þetta er af mörgum talin besta bókin um borgarastyrjöldina á Spáni og ætti það ekki að koma neinum á óvart, enda er höfundur bókarinnar, Bretinn Antony Beevor, einn allra besti sagnfræðingur veraldar þegar kemur að stríðsátökum.
Leiðbeinandi verð: 5.980.-
Uppseld.
Föndur-Jól
Útgáfuár: 2009
Þessi einstaklega skemmtilega föndurbók ætti að vera til á hverju heimili og í hverjum skóla, hvort sem það er grunnskóli eða leikskóli. Hér eru fjölmargar og einfaldar hugmyndir að jólaskrauti sem prýðir hvar sem er.
Leiðbeinandi verð: 3.680-.
Uppseld.
Föndur-Jól
Útgáfuár: 2009
Þessi einstaklega skemmtilega föndurbók ætti að vera til á hverju heimili og í hverjum skóla, hvort sem það er grunnskóli eða leikskóli. Hér eru fjölmargar og einfaldar hugmyndir að jólaskrauti sem prýðir hvar sem er.
Leiðbeinandi verð: 3.680-.
Uppseld.
Milli mjalta og messu
Útgáfuár: 2009
Gestir í hinum vinsæla útvarpsþætti Önnu Kristine Magnúsdóttur, Milli mjalta og messu, voru tæpir 500. Í þessari bók segja fimm þeirra sögu sína. Fríkirkjupresturinn hefur umburðarlyndi að leiðarljósi, ung kona er strútabóndi í Suður-Afríku, einn af 24 bestu ljósmyndurum veraldar bregður upp myndum í orðum, rafvirkinn og miðillinn eiga það sameiginlegt að þurfa að kunna tengja og kona sem missti stóran hluta fjölskyldu sinnar í snjólflóði segir frá afleiðingum þess á líf hennar.
Viðmælendurnir eru: Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, Unnur Berglind Guðmundsdóttir, Ragnar Axelsson (RAX), Skúli Lórenzson og Erla Jóhannsdóttir. Þau veita okkur hér innsýn í ævintýralegt líf sitt.
Leiðbeinandi verð: 5.480-.
Uppseld.