
Nýjasta útgáfa Hóla
Skósveinarnir-Skáldsaga fyrir krakka
Frá því að þeir birtust fyrst, hafa Skósveinarnir leitað að rétta illmenninu til að verða húsbóndi þeirra. Í leit sinni að hinum fullkomna foringja hafa þeir þjónað risaeðlum, konungum og jafnvel skrímslum.
Nú er kominn tími á nýjan húsbónda … ef þeir gætu aðeins fundið hann!
Sláist í hóp með Kevin, Stuart og Bob í ferðalagi þeirra um heiminn og takið þátt í varmennaráðstefnunni í leit að fyrirlitlegasta vonda kallinum (eða kellunni!) til að leiða þá félaga.
Leiðbeinandi verð: 3.280-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2015Þetta var nú bara svona
Þetta var nú bara svona er ævisaga Jóns Magnússonar, skipstjóra og athafnamanns á Patreksfirði, skráð af Jóhanni Guðna Reynissyni. Þetta er baráttu saga manns sem var ekki hugað líf fljótlega eftir fæðingu, hætti að reykja 12 ára gamall og hefur farið sínar eigin leiðir í lífinu og berst þá ekki alltaf með straumnum.
Jón er landsþekktur skipstjóri og aflamaður en fyrstu árin voru þyrnum stráð þar sem fyrir kom til dæmis að móðir pilts, sem hann vildi fá með sér á sjóinn, mætti þessum unga skipstjóra í dyragættinni með hnífinn á lofti.
Þau hjónin, Jón og Lilja Jónsdóttir, hafa rekið Odda hf. og Vestra ehf. á Patreksfirði um árabil og aldrei selt eitt aukatekið kílógramm af kvóta frá útgerðum sínum. Starfseminni er fyrst og fremst ætlað að afla byggðarlaginu lífsbjargar og veita fólkinu þar eins trygga atvinnu og auðið er.
Viðtal við höfund bókarinnar er að finna hér (undir flipanum Jólabækur): http://www.utvarpsaga.is/
Leiðbeinandi verð: 6.480-.
Útgáfuár: 2015Hundrað leiðir fyrir hund til að þjálfa manneskjuna sína
Hundrað leiðir fyrir hund til að þjálfa manneskjuna sína, eftir Simon Whaley, er skrifuð frá sjónarhóli hundsins og fjallar um hvernig best er að þjálfa fólk til að þjóna honum sem best.
„Fólk heldur að við séum hjarðdýr í leit að leiðtoga, en ekki láta glepjast. Lærðu hvernig hægt er að fá fólk til að snúast í kringum þig!
… Ef þú ert enn í vafa — eftir að hafa lesið bókina — hvor er húsbóndinn og hvor er þjónninn, þá skaltu bara velta þessu fyrir þér: Hvort ykkar þrífur upp kúkinn eftir hitt? Manneskjan eða hundurinn? Þá hefurðu fengið rétta svarið!“
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Útgáfuár: 2015Hvítir veggir
Þetta er fyrsta ljóðabók Sigrúnar Haraldsdóttur. Hún er þekkt sem einn fremsti hagyrðingur landsins en ekki er hún síðra ljóðskáld. Ljóðin, sem hafa orðið til á löngum tíma, eru einkar falleg, tær og einlæg og láta engan ósnortinn.
Leiðbeinandi verð: 2.980-.
Útgáfuár: 2015Ígrip
Efni ljóðanna í þessari bók eru af ýmsum toga; saknaðarljóð, náttúrulýsingar, ýmsar tilfinningatengdar minningar úr æsku höfundar og margt fleira. Ljóðin eru öll ort undir hefðbundnum bragarháttum.
Leiðbeinandi verð: 2.980-.
Útgáfuár: 2015Það er gott að búa í Kópavogi! Gamansögur af Kópavogsbúum
Gunnar I. Birgisson mátar buxur, Sigurður Geirdal sendir Guðmundi Oddssyni kveðskap, Finnbogi Rútur lofar vatni, Kristján H. Guðmundsson kaupir koníak, Einar Þorvarðarson er hætt kominn í flugvél, Hildur Hálfdanardóttir mætir hölt í vinnuna, Pétur Þ. Sveinsson blæs í þokulúður, allt er steindautt í vinnunni hjá Arnóri L. Pálssyni og Þórður á Sæbóli selur blóm. Hér koma margir við sögu og það er öruggt mál að lesendurnir eiga góðar stundir með þessa bráðskemmtilegu bók í höndunum.
Sýnishorn úr bókinni: http://issuu.com/gunnarkr/
Leiðbeinandi verð: 3.280-.
Útgáfuár: 2015Halloween I – hryllings- og draugasögur fyrir harðgerða krakka og unglinga
Bókin geymir nokkrar magnaðar sögur sem örugglega fá hjarta lesandans til að slá svolítið örar um tíma. Þetta er bók fyrir krakka og unglinga „sem þora! – og auðvitað hina eldri líka, svo fremi að þeir séu sterkir á taugum!“
Sýnishorn úr bókinni: http://issuu.com/gunnarkr/
Leiðbeinandi verð: 3.280-.
Útgáfuár: 2015Hersetan á Ströndum og Norðvesturlandi
Hér er greint frá umsvifum og dvalarstöðum setuliðsins á stríðsárunum, reynslu og kynnum liðsmanna og heimamanna, hermennskulífi, loftárásum, mannskæðum slysförum og vofveifilegum atburðum. Margar áður óbirtar ljósmyndir prýða bókina og fjallað er um braggabúðir, búnað og farartæki sem komust í hendur Íslendinga.
Viðal við höfundinn, Friðþór Eydal, er hér (undir flipanum Morgunútvarpið – 2. hluti):
http://www.utvarpsaga.is/
Leiðbeinandi verð: 6.480-.
Útgáfuár: 2015Fótboltaspurningar 2015
Hvaða fugl prýðir merki Vals? Hversu oft hefur Manchester United orðið Evrópumeistari? Hvaða leikmaður Chelsea var rekinn af velli í janúar 2013 fyrir að sparka í boltastrák? Hvert var síðasta liðið sem Ronald Koeman lék með? Liverpool keypti þrjá leikkmenn frá Southampton sumarið 2014. Tveir þeirra eru Rickie Lambert og Adam Lallana, en hver er sá þriðji? Þessi bók á að vera til á öllum heimilum knattspyrnuáhugamanna – og auðvitað hinna líka.
Leiðbeinandi verð: 1.390-.
Útgáfuár: 2015
Bestu barnabrandararnir – bara góðir
Hér er fjöldinn allur af sprenghlægilegum bröndurum sem henta hvar og hvenær sem er – jafnvel við jarðarfarir ef þær eiga að vera fyndnar! Lítum á eitt dæmi:
Það var hræðilegt slagveður og búðareigandinn var að loka, þegar inn kom maður og bað um tvo snúða. Bakarinn var undrandi á því að nokkur skyldi leggja það á sig að fara út bara til þess að kaupa tvo snúða í þvílíku veðri, svo hann spurði:
„Ertu giftur?“
„Auðvitað,“ ansaði maðurinn. „Heldur þú virkilega að mamma myndi senda mig út í þessu veðri?“
Leiðbeinandi verð: 1.390-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2015