Nýjasta útgáfa Hóla
Þú ert það sem þú borðar – endurútgáfa
Nú er hún loksins fáanleg aftur, metsölubókin ÞÚ ERT ÞAÐ SEM ÞÚ BORÐAR, en hún breytt hefur lífi fjölmargra til hins betra. Og þetta er ekki bara bók fyrir þá sem þurfa og vilja grennast, heldur er hún fyrir alla sem vilja öðlast betri líðan.
Leiðbeinandi verð: 4.790-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2010Samstarf á Austurlandi
Í fyrri hluta þessarar bókar er fjallað um Fjórðungsþing Austfirðinga 1943-1964, en í þeim síðari um arftaka þess, Sambands sveitarfélaga á Austurland 1966-2006. Fjallað er um baráttu austfirskra sveitarstjórnarmanna fyrir betra mannlífi í fjórðungnum og fölmörg mál eru hér í brennidepli, s.s. atvinnumál, raforkumál, mennta- og menningarmál, heilbrigðismál og samgöngumál.
Svæðisbundnu samstarfi sveitarstjórnarmanna á Íslandi hefur aldrei áður verið gerð jafnítarleg skil og í þessu riti. Því ættu engir áhugamenn um sveitarstjórnarmál að láta það framhjá sér fara.
Leiðbeinandi verð: 7.980-.
Útgáfuár: 2010Útgáfuhátíð vegna Fjallaþyts
Þann 13. júlí nk. kemur út bókin FJALLAÞYTUR-úrval úr ljóðum Hákonar Aðalsteinssonar. Þann dag hefði hann orðið 75 ára, en hann lést í mars 2009. Í tilefni af útgáfu bókarinnar verður þennan dag efnt til útgáfuhátíðar á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal þar sem gestum býðst meðal annars að sitja í Hákonarstofu og hlýða á ýmsa áheyrilega sögumenn, auk þess sem hagyrðingar munu skemmta viðstöddum. Hátíðin hefst klukkan 20:00 og eru allir velkomnir.
Þriðjudagur 6. júlí 2010Jón Bö látinn
Á páskadag lést sagnameistarinn og skólamaðurinn Jón Böðvarsson, en hann átti þá aðeins örfáar vikur eftir í áttrætt. Hann skilur eftir sig stór spor vegna starfa sinna að mennta- og menningarmálum; ekki hvað síst fyrir það að hafa glætt áhuga manna á íslensku fornsögunum.
Fyrir jólin síðustu gaf Bókaútgáfan Hólar út viðtalsbók við Jón, Sá á skjöld hvítan. Guðrún Guðlaugsdóttir, blaðamaður og rithöfundur, skrifaði bókina og er þar margt skemmtilegt og fróðlegt að finna.
Bókaútgáfafn Hólar þakkar Jóni Böðvarssyni samstarfið við gerð og útgáfu bókarinnar.
Sunnudagur 11. apríl 2010Vinningshafinn í sjöttu spurningalotu Hóla
Óskar Sölvason hlaut vinninginn í sjöttu spurningalotu Bókaútgáfunnar Hóla og valdi hann sér bókina SÁ Á SKJÖLD HVÍTAN-VIÐSTALSBÓK VIÐ JÓN BÖÐVARSSON, sem Guðrún Guðlaugsdóttir skráði. Þetta er hressileg bók um þennan mikla sagnamann og ættu fjölmargir að geta haft af henni bæði fróðleik og skemmtun.
Og nú er síðasta lotan í JÓLASPURNINGALEIK Bókaútgáfunnar Hóla hafin og er spurningarnar að finna á heimasíðu útgáfunnar, holabok.is Vinningurinn er sem fyrr ein af bókum Hóla og það að eigin vali en auk þess gjafakort fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Og þá er bara að skella sér í leikinn og vona það besta.
Bókaútgáfan Hólar óskar svo landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar um leið fyrir góðar móttökur á bókum útgáfunnar, bæði nú og fyrr.
Mánudagur 14. desember 2009Vinningshafinn í fimmtu spurningalotu Hóla
Bryndís Tinna Hugadóttir hreppti vinninginn í fimmtu spurningalotu Bókaútgáfunnar Hóla og fær hún að launum þá bók sem hún valdi sér, BESTU BARNABRANDARARNIR-FERLEGA FYNDNIR. Hún verður örugglega ekki fyrir vonbrigðum með þessa bók, enda hentar hún fyrir allan aldur og nánast hvar og hvenær sem er. Því miður hefur okkur ekki tekist að senda póst á Bryndísi og því biðjum við hana um að hafaf samband í netfangið holar@holabok.is og gefa þar upp heimilisfang sitt.
Og nú er sjötta lotan í JÓLASPURNINGALEIK Bókaútgáfunnar Hóla hafin og endilega takið þátt, það kostar ekkert og bara hægt að græða á því!
Mánudagur 7. desember 2009Útgáfuteiti
Miðvikudaginn 2. desember verður haldið útgáfuteiti í Eymundsson, Sólavörðustíg, vegna útkomu bókanna SÁ Á SKJÖLD HVÍTAN-VIÐTALSBÓK VIÐ JÓN BÖÐVARSSON, eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur, og MILLI MJALTA OG MESSU, eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur. Teitið hefst klukkan 17 og þar verður lesið úr bókunum og þær áritaðar fyrir þá sem vilja.
Boðið verður upp á kaffi, konfekt, kristal og kók.
Laugardagur 28. nóvember 2009Vinningshafinn í fjórðu spurningalotu Hóla
Þá hefur verið dregið ít fjórðu lotu í JÓLASPURNINGALEIK HÓLA og vinningshafinn er Sigurrós H. Sigurðardóttir. Hún valdi sér bókina ÍSLENSKAR GAMANSÖGUR 3 eftir Guðjón Inga Eiríksson, en sú bók inniheldur fjölmargar spaugsögur sem vafalítið geta komið flestum í gott skap.
Fjórða lota í JÓLASPURNINGALEIK HÓLA er svo hafin. Spurningarnar eru komnar á heimasíðu Bókaútgáfunnar Hóla, holabok.is, og endilega takið þátt – þið getið ekki tapað, bara unnið.
Laugardagur 28. nóvember 2009Vinningshafi í þriðju spurningalotu Hóla
Sigurvegari í þriðju spurningalotu Bókaútgáfunnar Hóla er Þóroddur Friðrik Gísli Jónsson og valdi hann sér bókina PAPA-JAZZ-lífshlaup Guðmundar Steingrímssonar. Þetta er bók um einn fremsta tónlistarmann okkar og um leið að stórum hluta saga djass- og dægurtónlistar á Íslandi. Þeir sem áhuga hafa á tónlist og tónlistarsögunni verða ekki vonsviknir með þessa bók sem Árni Matthíasson skráði.
Og nú er fjórða lotan í spurningaleik Bókaútgáfunnar Hóla hafin og eru þrjár spurningar komnar inn á heimasíðu útgáfunnar, holabok.is, undir liðnum JÓLASPURNINGALEIKURINN. Hvetjum alla til að taka þátt, enda getur enginn tapað á þessu, aðeins unnið.
Sunnudagur 22. nóvember 2009Vinningshafi í annarri spurningalotu Hóla
Vinningshafi í annarri spurningalotu Bókaútgáfunnar Hóla er Helga Dögg Haraldsdóttir og fær hún að launum bókina Föndur-Jól, eftir Rúnu Gísladóttur. Þetta er afar falleg bók og sýnir okkur og sannar að það er auðveldlega hægt að búa til skrautlegt og skemmtilegt jólaskraut án þess að kosta miklu og jafnvel nokkru til. Hvet því alla sem eru í jólaskreytingahugleiðingum að kynna sér þessa frábæru bók.
Og svo er rétt að taka það fram, að þriðja spurningalotan er hafin og eru komnar þrjár nýjar spurningar inn á heimasíðu Bókaútgáfunnar Hóla, holabok.is og er þær að finna undir orðinu JÓLASPURNINGALEIKURINN.
Sunnudagur 15. nóvember 2009