Nýjasta útgáfa Hóla
Úr útiverunni: Gengið og skokkað
Hér segir Bjarni E. Guðleifsson, náttúrufræðingur á Möðruvöllum í Hörgárdal, í einföldu máli frá langri reynslu sinni af göngum um fjöll og dali og skokki eftir þjóðvegum, borgarstrætum og óbyggðum. Hann dregur fram ýmis spaugileg atvik frá þessum ferli sínum en kemur jafnframt með þarfar hugleiðingar og gagnlegar ábendingar. Meðal annars er gerð grein fyrir göngugörpum, fjallasýki, íslenskukennslu náttúrunnar, Reykjavíkurmaraþoni og bilunareinkennum skokkarans. Texti bókarinnar er tvímælalaust til þess fallinn að hvetja fólk til útivistar og njóta þá hverrar einustu mínútu.
Leiðbeinandi verð: 2.280-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Náttúruskoðarinn II: Úr jurtaríkinu
Þetta er önnur bókin í bókaflokknum Náttúruskoðarinn (sú fyrsta heitir Úr dýraríkinu). Hér er víða komð við og fjallað í einföldum og auðskiljanlegum texta um jurtalíf, vilijurtir og nytjajurtir
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Án lyfseðils
Gamansögur af læknum, hjúkrunarfólki og sjúklingum. Magnaðar sögur sem koma öllum í gott skap. Bjarni Jónasson læknir tók bókina saman og sýnir hér og sannar að doktorar hafa næmt auga fyrir hinu skoplega, ekki síður en táknmynd þeirra, Saxi læknir.
Hvað kallast hröð fæðing? Jú, ÓÐAGOT!
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Ævintýri Nonna: Nonni
Nonna er boðið að fara til útlanda í skóla en sjóferðin yfir hafið er hættuleg og felur meðal annars í sér árás hungraðra ísbjarna á skipverjana.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Örnólfsbók
Afmælisrit tileinkað Örnólfi Thorlacius, fyrrum rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, 75 ára.
Leiðbeinandi verð: 4.900-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006
Kraftur í Krýsu
Hér er rakin saga Krýsuvíkursamtakanna síðastliðin 10 ár, frá 1996 til 2006. Fjallað er um það einstaka starf sem á sér stað innan þeirra, meðferðina sjálfa, skólahaldið og hinn glæsilega vitnisburð sem samtökin hafa fengið. Rætt er við aðila sem eiga þeim lífið að launa og svo flýtur ýmislegt með af léttara taginu.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Spurningabókin 2006
Spurningar um nánast allt milli himins og jarðar. Bók sem hentar hvar og hvenær sem er – nema kannski ekki við jarðarfarir.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Eyfirsk skemmtiljóð
Fjölmargir eyfirskir hagyrðingar stíga hér á stokk og útkoman er bráðskemmtilegur kveðskapur sem svo sannarlega kitlar hláturtaugarnar og vel það. Á meðal þeirra sem við sögu koma má nefna Björn Þórleifsson, Davíð Hjálmar Haraldsson, Einar Kristjánsson, Heiðrek Guðmundsson, Hjálmar Freysteinsson, Jón Ingvar Jónsson, Kristján frá Djúpalæk, Kristján N. Júlíus (K.N), Látra-Björgu, Óttar Einarsson, Pétur Pétursson, Rósberg G. Snædal, Rögnvald Rögnvaldsson og Stefán Vilhjálmsson.
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Suðurnesjaskop
Dagbjartur útgerðarmaður á sjö áhugamál, Arinbjörn læknir skrifar undir allt og Helgi S. Jónsson sýnir lífgun úr dauðadái með þeim afleiðingum að ekki rennur af tilraunabrúðunni í viku á eftir. Þessir snillingar og margir fleiri fara á kostum í þessari sprenghlægilegu bók.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006