Nýjasta útgáfa Hóla
Spurningabókin 2000
Af hvaða dýri fáum við beikon? Hver fann upp á því að setja ljós á jólatré? Hvaða borgarnafn verður eldsmatur ef það er lesið aftur á bak? Hvenær varð Íslands frjálst og fullvalda ríki? Hvað merkir orðið nærkona? Þessar og margar fleiri spurningar í þessari bráðskemmtilegu spurningabók.
Uppseld.
Útgáfuár: 2000Nærmynd af Nóbelsskáldi
Hver var Halldór Kiljan Laxness í raun og veru? Maðurinn á bak við skáldið? Hér segja samtíðarmenn hans, bæði ættingjar og aðrir sem til hans þekktu, frá því hvernig hann kom þeim fyrir sjónir. Sannarlega áhrifamikil og persónuleg bók um einstæðan mann.
Uppseld.
Útgáfuár: 2000Búkolla
Gamla, góða ævintýrið um Búkollu með glæsilegum myndum Kristins G. Jóhannssonar heillar jafnt börn sem fullorðna.
Uppseld.
Útgáfuár: 2000Stoke City í máli og myndum
Hér er í stuttu máli rakin saga Stoke City frá stofnun félagsins 1868 til 2000. Fjallað er um sigra þess og sorgir, minnissstæða leikmenn á borð við Stanley Matthews og Gordon Banks sem og framkvæmdastjóra, auk þess sem talsverðu púðri er eytt í yfirtöku Íslendinganna á félaginu og þann sem þá tók þar við stjórnartaumunum, Skagamanninn Guðjón Þórðarson.
Uppseld.
Útgáfuár: 2000Rauðu djöflarnir – Knattspyrnustjörnurnar í Manchester United
Hér má lesa um allar helstu knattspyrnustjörnurnar í Sögu Manchester United allt til ársins 2000. Þar á meðal Duncan Edwards, Bobby Charlton, Denis Law, George Best, Bryan Robson, Eric Cantona, Peter Schmeichel, Ryan Giggs, Roy Keane, Steve Bruce, Andy Cole, Paul Scholes, David Beckham, Teddy Sheringham og Ole Gunnar Solskjær.
Uppseld.
Útgáfuár: 2000Rauðu djöflarnir-Saga Manchester United 1878-1999
Hér er rakin saga vinsælsta knattspyrnuliðs veraldar, Manchester United, allt frá stofnun þess 1878 til þrennuársins 1999. Farið er yfir sorgir þess og sigra, sagt frá ýmsu sem gerðist að tjaldarbaki og fjallað fjölmarga leikmenn liðsins. Þessi bók á að vera til á öllum heimilum United-manna.
Uppseld.
Útgáfuár: 1999Já, ráðherra
Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Guðni Ágústsson, Árni Johnsen, Matthías Bjarnason, Einar Oddur Kristjánsson, Halldór Blöndal, Stefán Jónsson, Ólafur Thors, Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds, Jón Baldvin Hannibalsson og allir hinir láta hér gamminn geisa svo um munar.
Hver varð ráðherra fyrir misskilning?
Uppseld.
Útgáfuár: 1999Bestu barnabrandararnir – svaka stuð
Óborganlega fyndin bók fyrir alla aldurshópa.
Uppseld.
Útgáfuár: 1999Gettu nú
Hvað hefur krossfiskur marga arma? Hvað heitir minnsti jólasveinninn? hver leikur háðfuglinn Mr. Bean? Hvar er Kántrýbær? hvert er hæsta dýr jarðar? Þetta og margt fleira í þessari bráðskemmtilegu spurningabók.
Uppseld.
Útgáfuár: 1999Skagfirsk skemmtiljóð III
Hér kveðja sér hljóðs á fjötta tug snjallra, skagfirskra hagyrðinga, svo sem Jón Kristjánsson, séra Hjálmar Jónsson, Kristján Stefánsson frá Gilhaga, Þorleifur Konráðsson frá Frostastöðum, Lúðvík kemp, Björn Pétursson frá Sléttu, Árni Gunnarsson, Jói í Stapa, Sigurður Hansen, Stefán Guðmundsson og Haraldur frá Kambi.
Uppseld.
Útgáfuár: 1999