Páll Gíslason látinn
Þann 1. janúar sl. lést Páll Gíslason læknir, skátaforingi og borgarfulltrúi, 86 ára að aldri. Á síðasta ári gaf Bókaútgáfan Hólar út ævisögu hans, Læknir í blíðu og stríðu, skráða af Hávari Sigurjónssyni. Bókin er í senn bæði skemmtileg og fræðandi og vilja Hólamenn þakka Páli fyrir samstarfið við vinnslu hennar og kynningu og senda jafnframt samúðarkveðjur til ættingja hans.
Miðvikudagur 5. janúar 2011