Nýjasta útgáfa Hóla
Brot úr byggðarsögu – mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár
Bók þessi skiptist í átta hluta: Um hreppinn og stjórn hans, einkum á þeim tíma þegar framfærslumálin vógu þyngst. Búnaðarbálkurinn er fyrirferðarmestur, bændur tóku hlutverk sitt alvarlega og stofnuðu Framfarafélag 1867 og Nautgriparæktarfélag 1904. Í kafla um samgöngur segir frá fyrstu gerð vega og brúa, upphafi bílaaldar í hreppnum, pósti og síma en í þessum hreppi var einmitt lagður fyrsti sveitasími á Íslandi árið 1897. Í kafla um rafmagn segir frá fyrstu heimarafstöðvum og hvernig fólk lýsti upp hús sín með vindrellum og bensínmótorum og fleiru fram að komu Laxárrafmagns 1956. Læknum og ljósmæðrum er tileinkaður sérstakur kafli en Höfðahverfislæknishérað var stofnað 1894. Verslunarkaflinn er litríkur og skólasagan ekki síður. Síðasti kaflinn fjallar um félagasamtök margs konar. Bókina prýðir hátt á fimmta hundrað mynda.
Leiðbeinandi verð: 8.980-.
Útgáfuár: 2013Von-saga Amal Tamimi
Amal Tamimi er fædd og uppalin í Jerúsalem í Palestínu. Hún var 7 ára þegar stríðið skall á, 13 ára var hún fangelsuð af Ísraelsmönnum vegna grjótkasts, 16 ára var hún gift. Árið 1995 flúði hún heimilisofbeldi eiginmanns síns og fór með börnin sín fimm til Íslands. Flóttinn var ævintýralegur og Amal hræddist um líf sitt. Nafn Amal merkir von. Von Amal hefur ávallt verið að komið sé fram við hana og alla aðra eins og manneskjur. Af virðingu og væntumþykju.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2013Húmör í Hafnarfirði
Smávaxnir Hafnfirðingar með Leif Garðars, Þóri Jónsson, Halla í Botnleðju, Leif Helga, Viðar Halldórs og Óla Dan bera höfuðið hátt þrátt fyrir smæðina. Hörður Magnússon gáir til veðurs. Gísli pól umkringir mann. Kennarar við Flensborgarskólann skreppa í bíó og hafa með sér rauðvínskút. Þórður Þórðarson boðar „strand á Dansgötunni“. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson lýsir starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar. Gummi Valda mætir draghaltur til vinnu. Hildur Guðmundsdóttir biður nemanda sinn að bíta á jaxlinn. Maggi Óla fer á sjó. Geir Gunnarsson neitar. Adolf Björnsson týnist og Ingileif Ólafsdóttir pantar hangikjöt.
Leiðbeinandi verð: 2.980-.
Útgáfuár: 2013Skagfirskar skemmtisögur 3 – Enn meira fjör!
Gamansemi Skagfirðinga er óþrjótandi sagnabrunnur. Hér eru óborganlegar sögur af m.a. Bjarna Har, Halla í Enni, Friðriki á Svaðastöðum, Dúdda á Skörðugili, Bjarna Marons, Pálma Rögnvalds og Álftagerðisbræðrum og sveitungum þeirra. Einnig af Jóni Drangeyjarjarli, Birni í Bæ, Ýtu-Kela, Binna Júlla, Jóhanni í Kúskerpi, Marka-Leifa, Sigga í Vík, Gunna Rögnvalds, Siggu á Eyrarlandi og fyndnum Fljótamönnum. Eru þá sárafáir nefndir af þeim sem hér stíga á stokk.
Leiðbeinandi verð: 2.980-.
Útgáfuár: 2013Sir Alex – hinn magnaði Ferguson-tími hjá Manchester United 1986-2013
Einstök saga Ferguson-tímans hjá Manchester United er viðfangsefni þessarar bókar og ekki vantar stórsjörnurnar: Cantona, Schmeichel, Solskjær, Keane, Ronaldo, Rooney, Beckham, Ferdinand, Scholes. Vidic, Giggs og Van Persie og eru þá fáir nefndir. Á bak við þetta stóð svo arkitektinn að öllum ævintýrunum, Sir Alex Ferguson. Frábær fótboltabók – stútfull af snilldartilþrifum, ruddalegum tæklingum, rauðum spjöldum og alls kyns fótboltakryddi.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2013Allir krakkarnir 2
Þessi bók inniheldur hefðbundið nafnarím, bæði kærleiksríkt og kvikindislegt, vel á sjötta hundrað talsins. Fyrri bókin, Allir krakkarnir, kom út árið 1993 og seldist fljótlega upp. Hér er loks komin út ný bók með enn meira nafnarími. Samkvæmt hefðinni hefst meirihlutinn á orðunum „Allir krakkarnir“ og svo þarf rímið að vera sterkt og einnig þarf húmorinn oftar en ekki að vera svartur og kaldhæðinn.
Hér er hægt að skoða sýnishorn af bókinni: issuu.com/gunnarkr/docs/allir_krakkarnir2-synishorn
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Útgáfuár: 2013100 ára saga Kaupfélags Héraðsbúa
Kaupfélag Héraðsbúa, sem stofnað var árið 1909, á sér merka sögu. Það var á löngu tímabili burðarás í austfirsku atvinnulífi með mikla starfsemi bæði á Héraði og niðri á fjörðum en með breyttum viðskiptaháttum og samfélagsþróun í lok 20. aldar tók að fjara undan því. Hér rekur Jón Kristjánsson, fyrrum ráðherra, aldarsögu þessa merkilega samvinnufélags og tekur ýmsa króka til að gera frásögnina jafnt skemmtilega sem fræðandi.
Leiðbeinandi verð: 7.980-.
Útgáfuár: 2013Allt upp á borðið
Sagnameistarinn Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku rifjar hér upp bernsku sína og gerir upp þingmanns- og ráðherraferil sinn í stuttu máli. Þá fjallar hann um Seyðisfjörð og Seyðfirðinga og ekki síst það góða og göfuga starf sem unnið er á heilbrigðisstofnuninni þar í þágu þeirra sem glíma við minnistap.
Leiðbeinandi verð: 4.680-.
Útgáfuár: 2013Gullin ský – ævisaga Helenu Eyjólfsdóttur
Söngkonan vinsæla, Helena Eyjólfsdóttir, segir hér frá lífi sínu í gleði og sorg; lífinu í Reykjavík á uppvaxtarárunum, föðurmissi, dvöl á Silungapolli, fjölskyldulíifinu og glímu eiginmanns hennar, Finns Eydal, við lyfjafíkn og síðar krabbamein og nýrnabilun. En rauði þráðurinn er dægurlagasöngurinn þar sem Helena var hvað þekktust fyrir söng í Hljómsveit Ingimars Eydal. Sautján ára gamalli var henni boðið að syngja í Bandaríkjunum, Skandinavíu og á meginlandi Evrópu. En hún kaus að hafna frægð og fram í útlöndum og skemmta Íslendingum. Það hefur hún nú gert í um sextíu ár.
Leiðbeinandi verð: 5.980-.
Útgáfuár: 2013Bestu barnabrandararnir-skothelt stuð
Þetta er átjánda bókin í þessum geysivinsæla bókaflokki. Brjálæðislega fyndnar sögur sem koma öllum i gott skap, jafnt ungum sem öldnum og ættu að vera til alls staðar.
Leiðbeinandi verð: 1.290-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2013