Nýjasta útgáfa Hóla
Spurningabókin 2003
Hér eru spurningar við allra hæfi; spurt er um vonda menn og góða, heimspekinga og listamenn og fleiri til.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Drakúla
Þegar hinn ungi Jonathan Harker kemur í draugalegan kastala Drakúla greifa í Transylvaníu hefur hann ekki hugboð um hvað bíður hans. Skelfilegir atburðir eru í nánd. Drakúla er frægasta og ægilegasta hryllingssaga allra tíma. Ekki lesa hana einn á síðkvöldi.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Lyginni líkast
Af íslenskum ýkjumönnum sem sögðu sögur af sömu list og Münchausen. Fjöldi íslenskra sagnamanna stígur fram. Frásagnargáfan er stórkostleg. Gísli Jónsson menntaskólakennari segir lífssögu Jóns Skrikks. Austfirðingurinn Sögu-Guðmundur sker í þokuna. Gunnar Jónsson á Fossvöllum segist aldrei hafa sagt ósatt orð á ævi sinni og er verðlaunaður fyrir.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Afsakið – hlé
Fyndnasta bók ársins. Sorglegasta bók ársins. Lygilegasta bók ársins. Bókin sem þú verður að lesa. Hinn kynþokkafulli Logi Bergmann, Jón Ársæll, Sigmundur Ernir, Þór Jónsson, Stefán Jón Hafstein, Arnar Björnsson og ótal fleiri fjölmiðlamenn birtast hér á sínum bestu stundum – og sínum verstu.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Lífsþorsti og leyndar ástir
Svipmyndir úr lífi Gríms Thomsens og nokkurra samferðamanna.
Höfundur: Kristmundur Bjarnason.
Fullt verð: 4480 kr. með vsk.
Uppseld
Útgáfuár: 2003Leiðin til Jerúsalem
Óhemju spennandi metsölubók. Leiðin til Jerúsalem gerist á 12. öld og segir sögu hins sænska Arna Magnússonar sem elst upp í klaustri undir handarjaðri vopnfimasta krossfarans. Þegar Árni snýr aftur út í heiminn er hann óviðbúinn þeim kaldrana sem mætir honum. Jafnvel faðir hans trúir því um tíma að munkarnir hafi eytt allri karlmennsku úr Árna. En Árni á eftir að koma öllum á óvart. Leiðin til Jerúsalem hefur verið á toppi metsölulista í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Uppgangsár og barningsskeið
Í þessu öðru bindi Sögu sjávarútvegs á Íslandi segir frá því þeagr vélaraflið hélt innreið sína og sjávarútvegur Íslendinga gjörbreyttist á fáeinum árum. Bátar og togarar ösluðu um öll mið og hafið tók sinn toll. Jón Þ. Þór fjallar á einstakan hátt um sjávarútveg Íslendinga. Hér er á ferðinni grundvallarrit um íslenska sögu og baráttuna við Ægi.
Leiðbeinandi verð: 6.980-.
Uppseld
Útgáfuár: 2003Afmæliskveðja til Háskóla Íslands
Afmælisrit í tilefni af 90 ára afmælis Háskóla Íslands 2001. Fjölmargar athyglisverðar greinar eru í bókinni og koma þær víða við.
Uppseld.
Útgáfuár: 2003Ævintýri Nonna: Nonni og Manni fara á sjó
Eitt af hinum mögnuðu ævintýrum úr smiðju Nonna, Jóns Sveinssonar. Bræðurnir Nonni og Manni reyna að tæla fiskana upp úr sjónum en lenda í þoku og hvalavöðu og eru hætt komnir. Bráðskemmtileg og spennandi bók fyrir börn og unglinga sem og fullorðna.
Uppseld.
Útgáfuár: 2002Gullkorn úr hugarheimi íslenskra barna
Hér er safnað saman ótal tilsvörum barna sem varpa ljósi á heimssýn þeirra. Gullkorn er falleg bók um englana okkar; speki þeirra, falsleysi og einlægni en allt þetta endurspeglast í orðum barnsins sem sagði: ,,Maður getur alveg notað ömmu sína fyrir vin.“
Uppseld.
Útgáfuár: 2002