Nýjasta útgáfa Hóla
Stafrófsvísur Ara orms
Ari ormur skríður í gegnum stafrófið og auðvitað er það ekki með öllu hættulaust.
Uppseld.
Útgáfuár: 2005Því ekki að brosa
Séra Birgir Snæbjörnsson, prestur á Akureyri, dregur fram skemmtilegar stundir ævi sinnar og þær eru svo sannarlega broslegar.
Uppseld.
Útgáfuár: 2005Á Sprekamó
Afmælisrit tileinkað Helga Hallgrímssyni, náttúrufræðingi, sjötugum, 11. júní 2005.
Uppseld.
Útgáfuár: 2005Svik
Tilnefnd sem besta sænska glæpasagan 2003. Engin er snjallari Alvtegen í að spinna vef óvæntra atburða. „Þetta er bók fyrir spennufíkla,“ sagði Dagbladet og Expressen skrifaði: „Svik lætur hárin rísa“. Lesið og sannfærist.
Uppseld.
Útgáfuár: 2005Ástæður þess að karlar ljúga og konur gráta
Alþjóðleg metsölubók! Bókin sem hjálpar körlum að skilja konur og konum að skilja karla. Hjónin Barbara og Allan Pease eru þekkt fyrir innsæi og hlýlega kímnigáfu sem skýrir þá ótrúlegu staðreynd að bækur þeirra hafa selst í 19 milljónum eintaka. Bókin sem bætir samskipti karla og kvenna. Löngu tímabær bók.
Uppseld.
Útgáfuár: 2005Alexander mikli – sonur guðanna
Alexander mikli er mesti herkonungur sem uppi hefur verið. Þó varð hann ekki nema 32 ára en náði að leggja undir sig hálfan heiminn. Hér er saga hans sögð á einstæðan hátt í máli og myndum. Stórfróðleg og einkar falleg bók.
Uppseld.
Útgáfuár: 2004Iðnskóli í eina öld
Iðnskólinn í Reykjavík á aldarafmæli um þessar mundir. Í fyrstu var hann einungis fábreyttur kvöldskóli en í dag er liðlega 2000 nemendum boðið upp á 820 námsgreinar á 35 námsbrautum. Hér er rakin saga þessa merka skóla sem jafnframt er nátengd sögu iðnaðar á Íslandi. Því ætti enginn iðnaðarmaður eða áhugamaður um atvinnusögu þjóðarinnar að láta hana framhjá sér fara.
Uppseld.
Útgáfuár: 2004Hve glöð er vor æska
Gullkornin sem ættuð eru frá börnum eru ótalmörg og bráðskemmtileg. Í þessari bók er að finna fjölmörg slík og eru mörg þeirra úr leikskólakerfinu þar sem einlægnin er ósvikin. Dásamleg bók um börnin okkar.
Uppseld.
Útgáfuár: 2004Dýrmæt reynsla
Sverrir Hermannsson segir frá því þegar lífi hans var bjargað. Hjónin Árni Ibsen og Hildur Kristjánsdóttir deila húsnæði með framliðnum og Anna Kristine Magnúsdóttir opnar Biblíuna og allt fellur í dúnalogn. Dýrmæt reynsla geymir fjölmargar frásagnir fólks af atburðum sem engin raunvísindi geta skýrt.
Uppseld.
Útgáfuár: 2004Alltaf í boltanum
Gullmolar úr knattspyrnuheiminum; bæði orðsnilld og það sem viðkomandi hefði betur ósagt látið.
Leiðbeinandi verð: 1.980-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2004