Nýjasta útgáfa Hóla



Chelsea 1905-2005

chelseaChelsea er tvímælalaust spútniklið fyrsta áratugar tuttugustu og fyrstu aldarinnar, en ekki hefur árangurinn alltaf verið glæsilegur, þótt félagið hafi oft og tíðum haft ágæta knattspyrnumenn innan sinna raða.  Á meðal knattspyrnukappa sem stíga hér fram í sviðsljósið má nefna Peter Osgood, Charlie Cooke, Ray Wilkins, Kerry Dixon, Ruud Gullit, John Terry, Frank Lampard, Gianfranco Zola og Eið Smára Guðjohnsen.  Og auðvitað er minnst á framkvæmdastjórann sigursæla og skrautlega, Jose Mourinho.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Myndlist á Akureyri að fornu og nýju

myndlistStórfróðleg bók um listalíf á Akureyri. Allir listamennirnir, allir listviðburðirnar, og höfundur spyr: Voru frumkvöðlarnir í íslenskri myndlist ef til vill fleiri en áður hefur verið haldið fram? Ríkulega myndskreytt bók – hvað annað!

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Ragnarök

ragnarokBráðskemmtileg og fræðandi bók um orusturnar sem enn í dag hafa áhrif á líf okkar. Séra Þórhallur Heimisson er landsþekktur fyrir afburða færni við að gæða fortíðina lífi. Hér sannast orðsporið.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Börnin í hellinum

bornin_i_hellinumSagan gerist á miðri 10. öld og fjallar um ævintýri hins 14 ára gamla Bolla og fjölskyldu hans. Þau eru útilegufólk og hafast við í helli og telja ýmsir sig eiga sökótt við þau. Æsispennandi og fróðleg bók.

Leiðbeinandi verð: 2.480-.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Frankenstein

frankenstein Frankenstein er kannski frægasta hryllingssaga allra tíma. Elding lýsir næturhimininn. Á sömu stundu sigrast Victor Frankenstein á stærstu ráðgátu vísindanna – og skapar líf.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Pétur Poppari

petur_poppariSaga Péturs Kristjánssonar lætur engan ósnortinn. Hann var goðsögn í lifanda lífi, hinn fullkomni holdgervingur hippakynslóðarinnar, en notaði þó aldrei dóp, og var samnefnari fyrir allt það flippaðasta sem rokksaga Íslands hefur að geyma. Pétur poppari – óborganleg bók um einstakan karakter.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Gæfuleit

gaefuleitÞorsteinn Jónsson var einn af stofnendum Framsóknarflokksins, þingmaður, skólastjóri og útgefandi. Hann bjargaði Gagnfræðaskólanum á Akureyri frá hruni og gaf út verk Davíðs Stefánssonar. Frábær ævisaga um forvitnilegan mann sem hafði áhrif.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Þorpsskáldið Jón úr Vör

thorpsskaldidJón úr Vör rekur hér lífshlaup sitt. Hann vex upp í allsleysi í þorpinu sínu fyrir vestan, flyst síðan suður og öðlast frægð þegar ljóð hans eru þýdd á erlenda tungu og fær að lokum sess meðal heiðurslistamanna
þjóðarinnar. Löngu tímabær bók.

Leiðbeinandi verð: 4.380-.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Nýsköpunaröld

nyskopunaroldStríðshörmungar, uppgangstími og hrikalegt hnignunarskeið togaranna, síldveiðarnar, landhelgin, þorskastríð, vélbátaútgerð og fiskvinnsla. Undirstöðurit íslenskrar sögu. Stórfróðleg bók og jafnframt sú þriðja og síðasta í þessari ritröð.

Leiðbeinandi verð: 6.980-.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005

Bestu barnabrandararnir – algjört möst

bb_algjort_mostBrandarar í hæsta gæðaflokki sem koma öllum til að hlæja.

Uppseld.

Útgáfuár: 2005
Eldra Nýrra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is