Nýjasta útgáfa Hóla
Kraftur í Krýsu
Hér er rakin saga Krýsuvíkursamtakanna síðastliðin 10 ár, frá 1996 til 2006. Fjallað er um það einstaka starf sem á sér stað innan þeirra, meðferðina sjálfa, skólahaldið og hinn glæsilega vitnisburð sem samtökin hafa fengið. Rætt er við aðila sem eiga þeim lífið að launa og svo flýtur ýmislegt með af léttara taginu.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Spurningabókin 2006
Spurningar um nánast allt milli himins og jarðar. Bók sem hentar hvar og hvenær sem er – nema kannski ekki við jarðarfarir.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Eyfirsk skemmtiljóð
Fjölmargir eyfirskir hagyrðingar stíga hér á stokk og útkoman er bráðskemmtilegur kveðskapur sem svo sannarlega kitlar hláturtaugarnar og vel það. Á meðal þeirra sem við sögu koma má nefna Björn Þórleifsson, Davíð Hjálmar Haraldsson, Einar Kristjánsson, Heiðrek Guðmundsson, Hjálmar Freysteinsson, Jón Ingvar Jónsson, Kristján frá Djúpalæk, Kristján N. Júlíus (K.N), Látra-Björgu, Óttar Einarsson, Pétur Pétursson, Rósberg G. Snædal, Rögnvald Rögnvaldsson og Stefán Vilhjálmsson.
Leiðbeinandi verð: 2.480-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Suðurnesjaskop
Dagbjartur útgerðarmaður á sjö áhugamál, Arinbjörn læknir skrifar undir allt og Helgi S. Jónsson sýnir lífgun úr dauðadái með þeim afleiðingum að ekki rennur af tilraunabrúðunni í viku á eftir. Þessir snillingar og margir fleiri fara á kostum í þessari sprenghlægilegu bók.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Bestu barnabrandararnir – magnað fjör

Meiriháttar brandarar fyrir allan aldur.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Þættir úr sögu Bessastaðaskóla 1805-1846
Bessastaðaskóli hefur verið sveipaður dulúð og leyndardómi, en hér er ljósi varpað á hið daglega líf lærimeistaranna og skólapiltanna, sem og umhverfi þeirra á Bessastöðum.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006What the Red Devils Said

Tilvitnanir í framkvæmdastjóra og leikmenn Manchester United í gegnum tíðina.
Bókin er ensku.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Nonnis abenteuer: Nonni und Manni geraten in seenot
Hér er á ferðinni eitt af ævintýrum Nonna, Jóns Sveinssonar, á þýsku. Íslenskt heiti bókarinnar er Nonni og Manni fara á sjó og kom hún út fyrir nokkrum árum.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006Laugardalsætt I-II
Laugardalsætt I-II er niðjatal hjónanna Katrínar Eyjólfsdóttur (1757-1815) og Þorleifs Guðmundssonar (1763-1833) á Böðmóðsstöðum í Laugardal. Afkomendur þeirra eru um 10.300, þar af margir þjóðkunnir einstaklingar. Á fjórða þúsund myndir eru í bókunum.
Leiðbeinandi verð: 28.900-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2006
Bráðsmellnar limrur eftir Davíð Hjálmar Haraldsson.