Nýjasta útgáfa Hóla



Vísnagátur úr Vestmannaeyjum

Í þessu bráðskemmtilega kveri glíma lesendur við mannanöfn, örnefni og húsanöfn í Vestmannaeyjum. Stundum liggur lausnin ef til vill í augum uppi, líka hjá þeim sem ekki þekkja þarna til, en öðrum tilvikum þarf örugglega að kafa djúpt eftir henni.

Leiðbeinandi verð: 3.380-.

Útgáfuár: 2026

Kvartmíluklúbburinn 1975-2025

Í þessari bók er „brunað“ í gegnum 50 ára sögu Kvartmíluklúbbsins, sem vissulega hefur upplifað tímana tvenna. Greint er frá skrautlegum aðdraganda að stofnun hans og fjölmörgum ökumönnum er fylgt eftir á misjöfnum ökutækjum, svo ekki sé meira sagt. Við sögu koma meðal annars prjónandi Volvo kryppa, græn padda, kókosbolla, sérbökuð vínabrauðslengja, fyrir nú utan allar Monzurnar, Chevrolettana, Pontiacana, Camaroana,  Willysana, Yamaha-hjólin og er þá fátt upp talið. Margt er hér afar fróðlegt og þótt á móti blási á köflum er oft stutt í húmorinn. Fjölmargar myndir prýða bókina og auðvitað lætur enginn áhugamaður um akstursíþróttir þetta eðallesefni fram hjá sér fara.

Leiðbeinandi verð: 9.980-.

 

Útgáfuár: 2026

Flensborg – stúdentar í fimmtíu ár

 

Vorið 2025 voru 50 ár liðin frá því að fyrstu stúdentarnir útskrifuðust frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Skólinn á sér þó lengri sögu og afar merkilega. Í þessari bók er sú saga rakin, auk þess sem 22 Flensborgarstúdentar deila með okkur minningum sínum úr skólanum og eru þær býsna skemmtilegar og á köflum bráðfyndnar.

Leiðbeinandi verð: 8.480-.

Útgáfuár: 2026

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is