
Spenna, 1. árg, 1. tbl
Magnað spennutímarit.
Leiðbeinandi verð: 890-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2008
Anna Kristine Magnúsdóttir Mikulcákova lést nú í ársbyrjun. Bókaútgáfan Hólar gaf út tveir bækur eftir Önnu, Milli mjalta og messu, sem byggði á samnefndum og vinsælum útvarpsþáttum hennar, og Með létt skap og liðugan talanda, sem er ævisaga Möggu í Dalsmynni. Báðar bækurnar nutu vinsælda, enda var Anna fundvís á viðmælendur og kunni þá list að leita eftir því markverða og segja þá sögu vel og heiðarlega. Blessuð sé minning Önnu Kristine.
Margir hafa þann skemmtilega sið að skrá hjá sér eitt og annað í dagbækur. Senn lýkur þessu ári og því viljum við Hólamenn minna á Fugladagbókina 2022, sem er í rauninni miklu meira en hefðbundin dagbók. Þar er að finna fróðleik um 52 fugla - einn fyrir hverja viku, marga svokallaða flækinga hér á landi, auk glæsilegra mynda af þeim. Fyrir fuglaáhugafólk er tilvalið að punkta hjá sér ýmislegt í bókina varðandi fugla, s.s. hvenær þessi fugl sást og þá hvar. Svo má vitaskuld nota dagbókina eins og hverja aðra og punkta hjá sér hvaðeina sem gott er að eiga skráð. Bókin er mjög hentug og t.d. fyrir fuglaáhugamenn má nefna að hún fer einkar vel í tösku. Því er tilvalið að grípa hana með sér í fuglaskoðun.
Fugladagbókin 2022, sem er eftir Sigurð Ægisson, er sannkölluð gersemi á meðal dagbóka!
Bókaútgáfan Hólar er mætt á Instagram. Þú finnur hana undir bokautgafan_holar. Endilega skelltu í "add" og fylgstu með skemmtilegum innslögum!
Um miðjan þennan mánuð lést Guðmundur Steingrimsson - Papa Jazz. Hann var afar snjall trommuleikari og einn af brautryðjendum djassins hér á landi; lék með fjölda hljómsveita og kenndi ýmsum þá list sem vandaður trommuleikur er.
Árið 2009 kom út hjá Bókaútgáfunni Hólum ævisaga Guðmundar og ber hún einfaldlega heitið Papa Jazz. Það var Árni Matthíasson sem skráði og má fullyrða hér og nú að samvinna þeirra félaga hafi orðið til þess að margvíslegur fróðleikur um tónlistarlífið á Íslandi varðveitist um ókomin ár og þá ekki síst það sem snýr að jazzinum.
Undirritaður kynntist Guðmundi vel á þessum árum og ræddum við um heima og geima, meira að segja um knattspyrnu, en Papa Jazz var stuðningsmaður Leeds og fylgdist ágætlega með boltasparkinu. Þess utan var hann mikill sögubrunnur um menn og málefni og var virkilega gaman að hlusta á hann segja frá. Hann kunni óteljandi sögur, fæstar máttu auðvitað fara eitthvað lengra, en hann sagði þær og aðrar einnig af slíkri snilld að unun var af.
Blessuð sé minning Papa Jazz.
Guðjón Ingi Eiríksson.
Svenni látinn
Í dag er til moldar borinn gamall nágranni minn frá Eskifirði, Sveinn Sigurbjarnarson, rútubílstjóri, ferðafrömuður, ævintýramaður og ég veit ekki hvað og hvað. Hann var einstakur maður á margan hátt og því þótti mér mikill fengur í því þegar hann féllst á það að leyfa mér að gefa út ævisögu sína. Það tók samt nokkur samtöl, en bókin heitir ÞAÐ REDDAST, kom út árið 2010 og er skráð af Ingu Rósu Þórðardóttur, sem því miður kvaddi þennan heim nokkrum árum síðar eftir baráttu við sama vágest og Svenni þurfti að lúta í gras fyrir, bölvað krabbameinið.
Skemmst er frá því að segja að bókin rokseldist og þá ekki síst á Austurlandi þar sem Svenni var gríðarlega mikils metinn og ekki af ástæðulausu. Seinna sagði hann mér að einn af kunningjum hans hefði fengið átta eintök af henni í jólagjöf og annar þrjú eintök. Hinn síðarnefndi hefði lesið þau öll og fundist það síðasta best!
Ég sendi öllum ættingjum Sveins Sigurbjarnarsonar samúðarkveðjur um leið og ég þakka honum fyrir fjölmargar rútuferðir í kringum íþróttir og skóla - svo og ekki síst vegna bókarinnar sem mun vafalítið halda nafni hans lengi á lofti.
Guðjón Ingi Eiríksson
Í maí næstkomandi verður gefið út úrval ljóða og lausavísna eftir Hjálmar Freysteinsson. Hann fæddist 18. maí 1943 og lést 6. febrúar 2020 og starfaði sem heimilislæknir, lengst af á Akureyri. Hjálmar var landsþekktur fyrir snjallar vísur. Hann var allra manna fundvísastur á þær hliðar á málum sem vöktu kátínu, gat alltaf séð það spaugilega, aldrei rætinn eða klúr, bara skemmtilegur.
Það er Bókaútgáfan Hólar sem gefa mun bókina út, en Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Höskuldur Þráinsson munu búa hana til prentunar. Í bókinni, sem áætlað er að verði um 200 blaðsíður, verður Tabula Memorialis og þar verða nöfn þeirra sem vilja votta lækninum og hagyrðingnum, Hjálmari Freysteinssyni, virðingu sína, skráð (nema viðkomandi kjósi ekki nafnbirtingu), en forkaupsverð hennar verður kr. 6.980- (innifalið er bæði sendingargjald og virðisaukaskattur). Áhugasamir kaupendur eru beðnir að senda nafn sitt, heimilisfang og kennitölu á netfangið holar@holabok.is (eða hringja í síma 692-8508 eftir klukkan 16 á daginn) og verða þá greiðslupplýsingar sendar til baka.
Það verður enginn svikinn af þessari bók, svo mikið er víst.
Magnað spennutímarit.
Leiðbeinandi verð: 890-.
Uppseld.
Útgáfuár: 2008
Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is