Nýjasta útgáfa Hóla



Bestu barnabrandararnir – þvílíkt dúndur

bb_thvilikt

Magnaðir brandarar.  Þessi bók ætti að vera til á hverju einasta heimili svo hægt sé að grípa til hennar hvenær sem er.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007

Orðabrellur

ordabrellurMagnaðar vísnagátur, vísbendingar í hverri einustu línu, sumar léttar aðrar nokkuð snúnar, en allar bráðskemmtilegar.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007

Fundarsköp

fundarskopHandbók um fundarstjórn og meðferð tillagna.  Bókin ætti að vera til í hverju einasta fyrirtæki og félagi, sem og í hverri einustu stofnun.  Rétt fundarstjórn er öllum mikilvæg.

Leiðbeinandi verð: 2.480-.

Uppseld.

 

 

Útgáfuár: 2007

Síðasta þorskastríðið

sidasta_thorskaÚtfærsla Íslendinga á fiskveiðilögsögunni í 200 mílur kallaði á einn eitt stríðið við Breta (reynda fleiri þjóðir).  Heimsveldið gegn eyþjóðinni.  Væntanlega hafa margir haldið að átökin yrðu ójöfn, en íslenska Landhelgisgæslan lét ekki að sér hæða og svör hennar við ágangi Breta, sem byggðust á notkun togvíraklippanna, vöktu athygli víða um heim.  Við þeim áttu Bretarnir engin svör.

Bókin byggir einkum á heimildum úr íslenskum og breskum skjalasöfnum sem nýlega hafa verið gerðar opinberar og ekki rannsakaðar að ráði áður.

Leiðbeinandi verð: 4.380-.

Uppseld.

 

Útgáfuár: 2007

Stalíngrad

stalingrad

Orrustan um Stalíngrad var ekki einungis sálfræðilegur vendipunktur síðari heimsstyrjaldarinnar; hún breytti einnig nútímahernaði.

Í bókinni er lýst reynslu hermanna beggja stríðsaðila sem börust við ómannúðlegar aðstæður, svo og óbreyttra borgara sem sátu fastir mitt í átökunum.  Höfundurinn, breski sagnfræðingurinn Antony Beevor, lýsir af mikilli nærfærni og skilningi grimmdinni, hugprýðinn og þjáningunum sem þetta fólk mátti þola og byggir hann lýsingar sínar að verulegu leyti á áður óbirtum gögnum í söfnum í Þýskalandi og Rússlandi.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007

Fyrsti vestur-íslenski feministinn

fyrsti_vesturMargrét J. Benedictsson ólst upp við erfiðar aðstæður á Íslandi og hélt ung til Vesturheims ásamt fjölda landa sinna í von um betra líf.  Þar lét hún mikið til sín taka í jafnréttisbaráttu kvenna og varð ötull málsvari þeirra jafnt í ræðu sem riti.

Saga Margrétar er saga mikillar hugsjónakonu sem átti sér þann draum að gera heiminn aðeins betri.  Saga hennar má alls ekki gleymast.

Leiðbeinandi verð: 4.780-.

Uppseld.

 

Útgáfuár: 2007

Fylgdarmaður húmsins

fylgdarmadur_humsinsHeildarkvæðasafn Kristjáns frá Djúpalæk.  Hver ljóðaperlan af annarri úr smiðju þessa stórgóða skálds og auðvitað lætur enginn ljóðaunnadi þessa bók framhjá sér fara.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007

Njósnari í Þýskalandi nasista?

njosnari_i_thyskaOlga Tsékova fór frá Rússlandi til Þýskalands og gerðist þar kvikmyndaleikkona.  Hún var í miklu uppáhaldi hjá nasistum, ekki síst Hitler, en vann með leynd fyrir rússnesku leyniþjónustuna.  Þetta er saga af ótrúlegu hugrekki, hugsjónum, ótta, sjálfsfórnum og svikum

Leiðbeinandi verð: 4.380-.

Uppseld.

 

Útgáfuár: 2007

Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum

nyjar_sogur_ogÍ þessari bók stíga fjölmargir Vestmannaeyingar á stokk og láta mikið að sér kveða. Guðjón líkkistusmiður á Oddsstöðum slær máli á látna – og lifandi, Nýja í Suðurgarði fær undarlega sprautu frá Einari lækni og Mundi í Draumbæ ekur með prestsfrúna og fleira drasl. Stúkumaðurinn Tóti í Berjanesi fær sér einn lítinn, Bjarnhéðinn Elíasson flaggar og kona hans, Ingibjörg Johnsen, geymir jólaveltu blómabúðarinnar á óvenjulegum stað. Þórarinn í Geisla leitar að Óskari á Háeyri á hverri strippbúllunni á fætur annarri og Óli Gränz lætur taka af sér fermingarmynd þótt langt sé um liðið síðan hann fermdist.  Bogi í Eyjabúð fær gos, Gísli Óskarsson reiðist í símann og séra Bára veldur vonbrigðum.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007

Kibba kiðlingur

kibbaÆvintýrið um Kibbu kiðling svíkur engann, hvorki unga né gamla.

Uppseld.

Útgáfuár: 2007
Eldra Nýrra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is